Vesturbæjarblaðið - May 2023, Page 12

Vesturbæjarblaðið - May 2023, Page 12
12 Vesturbæjarblaðið MAÍ 2023 www.borgarblod.is Netverslun: systrasamlagid.is Gríðarlega sterkt skólaskákmót var haldið í Hagaskóla 12. maí sl. Þar öttu allir sterkustu skákmenn skólans kappi og fór keppnin fram þvert á árganga. Undanfari mótsins voru þrjú árgangamót en mikill skákáhugi er í skólanum. Á þessu lokaskákmóti skólaársins tefldu 24 keppendur úr árgöngunum þremur til sigurs. Í fyrsta sæti varð Matthías Björgvin Kjartansson í 8. ASÁ. Í öðru sæti varð Magnús Andri Magnússon í 10. SÓ og í þriðja sæti varð Björn Höjgaard V. Steinsson í 8. AHO. Sterkt skákmót í Hagaskóla Sigurvegarar í skákmóti Hagaskóla. Skilaboð í geimskutlu í Landakotsskóla Verkefnið “Skilaboð í geimskutlu” var unnið á þemadögunum í Landakotsskóla þann 28. til 29. mars síðastliðinn. Allur skólinn tók þátt í verkefninu og var nemendum blandað þvert á bekki. Hugmyndin var sú að senda skilaboð út í geim um hvernig við lifum á jörðinni og hvað við myndum vilja að geimbúar viti um okkur. Útfærslurnar urðu margvíslegar. Sem dæmi, þá var unnið video verk, myndlist, stór kort af jörðinni og margt fleira. Afraksturinn var síðan sýndur á göngum skólans og var opið hús þar sem margir sáu sér fært að mæta og líta á verkin. Síðustu vikur hafa Bátaleikarnir verið í gangi í 6. bekk Vesturbæjarskóla. Bátaleikarnir eru svonefnd STEAM áskorun sem ætlað er að örva rökhugsun með hönnun, þrautalausnum og sköpun. STEAM stendur fyrir Science, Technology, Engineering, Art og Math. Áskorunin var að búa til bát sem gæti siglt ákveðna vegalengd án þess að sökkva. Börnin fengu frjálsar hendur um það hvernig þau útfærðu lausnina en báturinn átti að vera búinn til úr endurnýtanlegum efnivið og ekki mátti nota rafmagn til að knýja bátinn áfram. Við fengum Birgi skipahönnuð frá Skipasýn til okkar í heimsókn sem fræddi okkur um ýmislegt hvað varðar hönnun báta sem var mjög áhugavert og hvetjandi. Sköpunarsmiðjuverkefnið er viðfangsmikið og felur í sér ýmis hæfniviðmið. Verkefnið er e-Twinning verkefni en markmið slíkra verkefna er að auðga skólastarfið á ýmsan hátt. Auk Vesturbæjarskóla taka þátt Ingunnarskóli og Selásskóli og skólar á Norðurlöndunum. Ferlið var allt tekið upp og fengu nokkrir nemendur það hlutverk að búa til myndband sem sent verður hinum skólunum í verkefninu. Við fáum einnig að sjá hvernig gekk hjá þeim. Síðar í mánuðinum verður fjarfundur þar sem skólarnir hittast og fá smá örkynningu á því hvernig verkefnið gekk. Í framhaldinu halda börnin áfram að læra um krafta og geta því betur áttað sig á ýmsum hugtökum sem þeim tengjast með vísan í Bátaleikana sem gerir námið þeim merkingarbært. Bátaleikar á Reykjavíkurtjörn Frá þemadögum í Landakotsskóla. Nýsköpunarmennt í Melaskóla Í vetur hefur verið samstarfsverkefni í nýsköpunarmennt í 6. bekk Melaskóla. Hugmyndir nemenda í 6. bekk voru sendar inn í NKG (Nýsköpunarkeppni grunnskólanna) og var eitt verkefni úr Melaskóla valið í hóp 25 hugmynda af mörg hundruð innsendra umsókna. Nemendum Melaskóla í 6. bekk eru senda þakkir og góðar kveðjur frá dómnefndinni sem hvetur okkur að halda áfram með þetta góða starf til eflingar nýsköpunarmenntar á Íslandi. Eftir er að velja þær hugmyndir sem verða sigurvegara í flokkum keppninnar og verða úrslitin kynnt í lok maí. Frá bátaleikunum á Reykjavíkurtjörn. Skapandi verkefni í Melaskóla.

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.