Vesturbæjarblaðið - maj 2023, Qupperneq 15
15VesturbæjarblaðiðMAÍ 2023
GETRAUNIR.IS
107
GETRAUNANÚMER KR
Þórhildur Garðarsdóttir formaður KR.
Þórhildur Garðarsdóttir hefur fyrst kvenna verið kjörinn formaður
KR. Hún hefur átt sæti í aðalstjórn félagsins síðustu sjö árin og hefur
einnig tekið þátt í starfi þess á ýmsum öðrum sviðum. Þórhildur tekur
við sem formaður af Lúðvík Georgssyni en hann hefur verið formaður
KR frá árinu 2021. Gylfi Aðalsteinsson var formaður félagsins í átta ár
þar á undan.
Þórhildur kveðst í frétt frá KR vera afar stolt af því að vera tekin við sem
formaður. “Okkur bíða ærin verkefni og þar má helst nefna aðstöðumál
félagsins, en KR hefur því miður setið eftir þegar kemur að húsnæðismálum.
Ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að tryggja að börnum
og ungmennum í hverfinu verðin búin sú aðstaða sem þau þurfa,” sagði
Þórhildur eftir að hafa tekið við formannsembættinu.
Þórhildur
Garðarsdóttir
formaður KR
Skíðadeild KR átti flotta fulltúa
á Andrésar andar leikunum sem
haldnir voru í Hlíðafjalli í lok apríl.
Öll stóðu krakkarnir sig gríðarlega
vel og voru félagi sínu til mikils
sóma. Arnór Alex Arnórsson
gerði sér lítið fyrir varð tvöfaldur
Adrésarmeistari í svigi og stórsvigi í
flokki 14 ára. Freyja Rún Pálmadóttir
varð 2. sæti í svigi og 3. sæti í
stórsvigi í flokki 11 ára og Emil Páll
Snorrason var í 2. sæti í svigi í flokki
10 ára.
Arnór Alex tvöfaldur sigurvegari
á Andréar Andar leikunum
Arnór Alex Arnórsson ánægður
með sigurverðlaunin.
Strákarnir í KR mættu með tvö lið á Landsbankamót 8. flokks á
Selfossi fyrr í mánuðinum. Ellefu strákar skipuðu þessi tvö lið og
stóðu þeir sig allir frábærlega.
Hvort lið spilaði fjóra leiki sem allir voru æsispennandi með helling
af mörkum og góðum markvörslum. Strákarnir eru búnir að bæta sig
mikið í vetur og eru farnir að spila virkilega flottan handbolta þar sem
boltinn fær að fljóta vel á milli manna. Strákarnir voru því vel sáttir að
loknu mótinu og fengu medalíu í verðlaun.
Áttundi flokkur KR
stóð sig frábærlega
KR strákarnir voru að vonum ánægðir að mótinu loknu.
KR varð á dögunum Íslands meistari í 11. flokki
stúlkna í körfubolta eftir sterkan sigur á liði
Stjörnunnar 80-75. Liðin hafa marga hildina háð í
gegnum tíðina og hafa skipst á að vinna úrslitaleiki
gegn hvort öðru. KR liðið náði snemma yfirhöndinni í
leiknum og hélt henni út leikinn, þær leiddu mest með
21 stigi í 3 leikhluta 66–45. Stjarnan gerðu góða tilraun
til þess að komast aftur inn í leikinn í 4 leikhluta en allt
kom fyrir ekki, lokatölur urðu 80-75 KR stelpum í vil.
Maður leiksins var Rebekka Rut Steingrímsdóttir
en hún skoraði 25 stig, tók 8 fráköst og var með 26
framlagspunkta. Fjóla Gerður Gunnarsdóttir var frábær
með 18 stig, Anna Margrét Hermannsdóttir skoraði
15 stig og tók 16 fráköst, Anna María Magnúsdóttir
var nálægt þrennu með 14 stig, 9 fráköst og 10
stoðsendingar, Arndís Rut Matthíasdóttir og Kristrún
Edda Kjartansdóttir skoruðu báðar 4 stig.
Íslandsmeistarar í 11. fl. stúlkna
KR-stúlkurnar ásamt þjálfurum sínum að verðlaunaafhendingu lokinni.