Ægir - 01.06.2023, Qupperneq 8
8
Á miðunum
„Þetta munar ekki mjög miklu í af-
köstum – við gætum sennilega veitt
meira einir og sér. En með þessu móti
er hægt að stýra flæðinu betur í
vinnslunni. Þar munar miklu,“ segir
Tómas Kárason, skipstjóri á uppsjáv-
arskipinu Beiti NK um veiðisamstarfið
sem skip Síldarvinnslunnar og Sam-
herja áttu í á nýyfirstaðinni makríl-
vertíð. Skipin veiddu, eins og undan-
farin ár, í púkk og skiptust á að sigla
með aflann til hafnar.
Veiðisamstarf orðið algengara
Tómas segir að upphaf makrílvertíðar-
innar í sumar hafi verið ákaflega
ánægjulegt. „Við náðum að veiða svo
mikið í íslensku lögsögunni. Venjulega
höfum við verið mest í Smugunni en
núna náðum við miklu við Ísland,“ út-
skýrir hann og bætir við að það muni
styrkja samningsstöðu Íslands þegar
kemur að skiptingu veiðiheimilda í
makríl á milli landa.
Eins og áður segir gerir veiðisam-
starfið vinnslunni kleift að stýra betur
flæðinu. Tómas bendir á að veiðisam-
starfið hafi líka þann kost að ekki þurfi
að bíða eftir plássi í löndun. „Þetta er
unnið jöfnum höndum og kvótanum
skipt á milli skipanna. Þetta getur auð-
vitað verið flóknara þegar kemur að
uppgjörinu en menn eru samt búnir að
ná góðum tökum á þessu. Flestar útgerð-
irnar, sem eru með nokkur skip, eru
komnar í þetta fyrirkomulag,“ útskýrir
Tómas.
Síldveiðar við bæjardyrnar
Síldveiðar hófust í byrjun september og
fara mjög vel af stað að sögn Tómasar.
„Þetta hefur verið eitthvað blandað af
íslenskri síld, svona til að byrja með,“
segir hann og bætir við að útgerðin vilji
fá sem mest af norsk-íslenskri síld, áður
en hún hverfi af miðunum.
Skipin hófu vertíðina við bæjardyrn-
ar fyrir austan land, ef svo má segja, í
Héraðsflóanum. Þau færðu sig svo norð-
ar til að fá minna af íslensku síldinni í
bland. „Við verðum mjög trúlega á síld-
veiðum fram í nóvember og þá kemur í
ljós hvernig fyrirkomulag loðnuveiða
verður,“ segir hann.
Tómas er bjartsýnn hvað loðnuna
varðar. „Ég veit ekki hvað kemur út úr
því hjá sérfræðingunum okkar. Þetta lít-
ur ágætlega út og það er góð stjórnun á
þessu hjá Þorsteini [Sigurðssyni, for-
stjóra Hafrannsóknastofnunar],“ segir
hann léttur í bragði að lokum.
Veiðisamstarfið reyndist vel
Beitir NK veiddi í samstarfi við skip Samherja á nýafstaðinni makrílvertíð. Það fyrirkomulag segir Tómas að sé að verða æ
algengara hjá uppsjávarskipaútgerðunum.
Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti NK. Myndir: Þorgeir Baldursson