Reykjanes - 24.06.1987, Síða 11
T
Miðvikudagur 24. júní 1987
11
• •
„Oruggur á að
ég myndi verja
—vítaspyrnuna frá Grétari,“ sagði Þorsteinn
Bjarnason
GARÐUR: — „Ég fékk það
strax á tilfinninguna að ég
myndi verja vítaskotid frá Grét-
ari Einarssyni. Já, ég var örugg-
ur um leið og ég snéri mér við í
markinu og horfði fram á völl-
Kjartan
skoraði
tvö mörk
SANDGERÐI: — Kjartan Ein-
arsson skoraði tvö mörk fyrir
Reynismenn þegar þeir lögðu
Hauka að velli, 3-0, í 3. deildar-
keppninni í knattspyrnu. Annar
fyrrum lcikmaður Keflavíkur-
liðsins, ívar Guðmundsson,
skoraði þriðja markið.
Leikmenn Reynis voru mun
sterkari heldur en Haukar, sem
voru vægast sagt lélegir. Þess
má geta að þrisvar sinnum skall
knötturinn á marksúlunni hjá
Haukum.
Njarðvík-
ingar unnu
sigur í
Borgarnesi
Leikmenn Njarðvíkurliðsins
fögnuðu sigri, 3-2, í Borgarnesi,
þar sem þeir léku gegn Skalla-
grím í 3. deildarkeppninni.
Njarðvíkingum gekk illa að
finna leiðina að marki Skalla-
gríms, sem hafði yfir, 2-1, í leik-
hléi. Þeir náðu þó að gera út um
leikinn í seinni hálfleik. Jón
Ólafsson, Guðbrandur og Frið-
rik Ragnarsson skoruðu mörk
Njarðvíkinga.
Grindavík
tapaði
Grindvíkingar máttu þola
tap, 0-3, fyrir Stjörnunni í 3.
deildarkeppninni. Stjörnumenn
voru mun sterkari í leiknum,
sem fór fram í Garðabæ.
—þar sem Keflvíkingar nýttu marktækifærin sín og unnu sigur, 3-1
inn,“ sagöi Þorsteinn Bjarna-
son, markvörður Keflavíkur-
liðsins, sem var fyrsti markvörð-
urinn í 1. deild til að verja vita-
spyrnu í ár.
Þorsteinn sagðist hafa verið
ánægður með úrslit leiksins.
„Víðismenn voru meira með
knöttinn síðustu 25 mín., en þeir
náðu ekki að skapa sér mark-
tækifæri. Aftur á móti gátum
við bætt við mörkum eftir
skyndisóknir,“ sagði Þorsteinn.
„Leikir okkar hafa verið
frekar köflóttir, ef svo má að
orði komast. Við verðum að
taka okkur á í næstu leikjum,
gegn KA, FH og Fram. Verðum
að fá minnst sex stig út úr
þeim,“ sagði Þorsteinn.
Óli Þór Magnússon var greinilega rangstæður þegar hann skoraði annaö mark Keflvíkinga.
Reykjanesmynd: Hrós.
knattspyrnu. Keflvíkingar náðu
að knýja fram sigur, 3-1, í fjör-
ugum og skemmtilegum leik.
Þorsteinn Bjarnason, mark-
vörður Keflavíkurliðsins, varði
vel í leiknum, en þó aldrei eins
vel og þegar hann varði víta-
spyrnu Grétars Einarssonar.
Þorsteinn náði að slá fast skot
Grétars í þverslá og aftur fyrir.
Víðismenn byrjuðu leikinn
með miklum látum og fengu
þeir tvö gullin tækifæri til að
skora. Þeim brást bogalistin í
bæði skiptin. Gunnar Oddsson,
fyrirliði Keflavíkurliðsins, var
með rétt stillta fallbyssu á 17
mín. leiksins, þegar hann fékk
sendingu frá Óla Þór Magnús-
syni. Gunnar skoraði með góðu
skoti af 18 m færi. Knötturinn
hafnaði efst upp í markhorninu,
óverjandi fyrir Gísla Hreiðars-
son.
Keflvíkingar bættu síðan
öðru marki við á 35 mín. Þá
sofnaði annar línuvörðurinn á
verðinum, þegar Óli Þór fékk
knöttinn þar sem hann var rang-
stæður. ÓIi Þór skoraði af
stuttu færi. Helgi Bentsson
bætti síðan þriðja marki Kefl-
víkinga við í seinni hálfleik, með
góð skoti af 20 m færi. Björgvin
GARÐUR: — Það gekk á ýmsu leikmenn Víðis á grasvöllinn í
þegar Keflvíkingar heimsóttu Garði í 1. deildarkeppninni í
Það var oft hart barist um knöttinn í leik Víðis og Keflavíkur.
Björgvinsson svaraði fyrir Víði,
3-1, með skalla og síðan varði
Þorsteinn vítaspyrnu Grétars,
eins og fyrr segir.
Leikurinn var mjög skemmti-
legur. Keflvíkingar voru betri í
fyrri hálfleik, en Víðismenn
komust inn í myndina í seinni
hálfleik, eftir að Keflvíkingar-
fóru að draga sig aftur í vörn.
Aftasta vörnin hjá Keflavík var
slök, en höfuðverkurinn hjá
Víði var sóknarieikurinn.
Skúli á
skot-
skónum
KEFLAVÍK: — Skúli Rósants-
son var á skotskónum þegar
Keflavík vann sigur, 1-0, yfir
Selfoss í íslandsmóti 1. flokks.
Skúli skoraði sigurmarkið.
Spennuleikur í Garði
íþrótta- og leikjaskóli
C3
Keflavíkur
«3
Nýtt námskeið fyrir börn 6-12 ára hefst 1. júlí.
Innritun í það hefst mánudaginn 29. júní frá kl.
16.00 - 19.00 í íþróttahúsinu við Sunnubraut.
Þátttökugjald er kr. 1.000,-
íþróttaráð Keflavíkur.