Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2023, Blaðsíða 10
10 | | 15. júní 2023
„Hér sitjum við á einhverju kaffi-
húsi í pinkulitlum bæ í Norður
Slóvakíu. Það hefði örugglega
engum Íslendingi dottið í hug
að koma hingað ef það hefði
ekki verið fyrir þennan skóla“
segir Lísa Margrét Rúnarsdóttir
sem leggur stund á læknisfræði
við Jessenius læknadeildina í
slóvakíska bænum Martin. Hún
er dóttir Þórunnar Ragnars og
Angantýs bæjarritara, og barna-
barn Önnu Jóhanns og Ragga
Bald, fyrrverandi slökkviliðs-
stjóra. Systir Lísu er Arína Bára
Angantýsdóttir. Blaðamaður og
samnemandi tók púlsinn af Lísu í
vorprófunum.
Hraunbúðir í miklu
uppáhaldi
Lísa, sem útskrifaðist úr mennta-
skóla í Brussel, hélt næst í
hjúkrunarfræði við Háskólann á
Akureyri. Þar var hún í tvö ár og
á með þeim tíma stóð var hún
formaður Eirar, nemendafélags
heilbrigðisvísindanema við há-
skólann, ásamt því að vera í stjórn
Landssamtaka íslenskra stúdenta.
Undir lokinn hallaðist hugurinn
meira í átt að læknisfræðinni
og þá sérstaklega erlendis. „Ég
fór því næst að vinna út á sjó,
en ég var háseti á frystitogaran-
um Blæng sem er gerður út frá
Neskaupstað af Síldarvinnslunni.
Ég fór nokkra túra á honum og
skellti mér svo í heimsreisu” segir
Lísa, en eftir það tók við lærdóm-
ur fyrir inntökuprófin.
Hún hefur verið að vinna í
stöðugildi hjúkrunarfræðings á
Hraunbúðum síðustu árin. Í sumar
verður hægt að rekast á Lísu upp
á spítala þar sem hún verður að-
stoðarlæknir. „Ég er ekki ákveðin
með sérnám, en ég hef verið að
skoða heimilislækningar og þá að
vera í Eyjum” segir Lísa. „Ég tek
örugglega líka einhverjar vaktir á
Elló í sumar. Mér þykir svo vænt
um fólkið og samstarfsfólkið mitt
þar. Ég elska þau alveg út af líf-
inu, og ég á eftir að sakna þess að
vera ekki í fullu starfi þar” bætir
hún við.
Taka leigubíl í skóla og búð
„Hér eins og annars staðar er
stemning að vera í háskóla.
Félagsskapurinn er frábær
og litla íslendingasamfélagið
okkar sömuleiðis. Martin hefur
undanfarin ár þróast í lítinn
krúttlegan háskólabæ. Ég sé alveg
mikinn mun á bænum frá því
að ég kom hingað fyrst. Það eru
reyndar glataðir veitingastaðir
hérna. Það vantar alveg rosalega
góðan mat hingað, þannig það
er eitthvað sem ég myndi vilja
breyta við Martin. Sömuleiðis
þá áttar maður sig ekki alveg á
hversu langt ferðalagið hingað er
áður en maður kemur fyrst” segir
Lísa en ferðalagið samanstend-
ur af ca. 4 tíma flugi til annað
hvort Póllands, Austurríkis eða
Ungverjalands, og svo a.m.k. 4
tíma keyrslu. Ekki er möguleiki á
því að taka beint flug til Slóvak-
íu. Þá lengist ferðin fyrir þá sem
koma ofan að landi.
„Svo er líka allt frekar ódýrt
hérna og því getur maður leyft sér
aðeins meira. Ég reyni að komast
hjá því að fara mikið út að borða,
en það að geta keypt sér mat og
leigt íbúð á viðráðanlegu verði er
stór kostur. Maður reynir líka að
nýta tækifærið og ferðast í kring.
Ég hef aðallega verið að fara til
Búdapest, en kærastinn minn,
Hallgrímur Júlíusson, bjó þar
um tíma þegar hann var að safna
sér inn tímum í flugmanninum”
en Lísa er líka í handbolta og
hefur ferðast til ýmissa borga og
smábæja í Slóvakíu með liðinu
sínu. Leigubíllinn er algengur
og ódýr farkostur sem nemar eru
duglegir að nýta sér. Það þykir
ekkert skrýtið að taka leigubíl út í
búð eða í tíma þegar maður er að
verða seinn.
Í einfaldri röð í fylgd
hermanna
„Það var ótrúlega furðuleg lífs-
reynsla að upplifa Covid hérna
úti. Ég man svo vel þegar þetta
skellur á. Þetta var sunnudagur
og ég fór á crossfit æfingu með
vinkonu minni. Eftir æfinguna
ákváðum við að fara í Tesco að
kaupa inn fyrir vikuna. Í búð-
inni þurfti ég svo að taka upp
símann og kveikja á netinu til að
þýða eitthvað í gegnum Google
Translate. Hvort þetta hafi
verið kryddumbúðir eða eitthvað
slíkt, en það er náttúrulega allt
á slóvakísku hérna og erfitt að
skilja. Þegar ég kveiki á netinu fæ
ég tölvupóst frá skólanum um að
honum hafi verið lokað og þá um
ófyrirsjáanlegan tíma” segir Lísa
Lísa lærir lækninn
Um 170 Íslendingar búsettir í smábæ í austantjaldslandi
Mikil samstaða meðal nemenda
SALKA SÓL
ÖRVARSDÓTTIR
salka@eyjafrett ir. is
Formlega orðnar læknanemar. Lísa er 2. önnur til hægri í hópi íslenskra nemenda.