Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2023, Blaðsíða 8
8 | | 15. júní 2023
Gleðilegt
smur
Toyota Kauptúni stendur fyrir smurherferð
dagana 19 - 23. júní í Vestmannaeyjum.
Við verðum til húsa að Flötum 21.
Bókið tíma á info@toyota.is
eða í síma 570 5070
Toyota Kauptúni info@toyota.is 570-5070
Á fundi fræðsluráðs í mars
2022 voru skoðaðar leiðir til
að mæta þeim áskorunum
sem bærinn stóð fyrir varðandi
aukna þörf á leikskólaplássi.
Ákveðið var í framhaldinu
að byggja við Sóla og fram-
kvæmdir við skólann hófust
í október 2022. Í upphafi
átti framkvæmdum að ljúka
í janúar 2023. Drógust þær
þó á langinn þar sem reiknað
var með tilbúnum einingum,
en svo reyndist ekki. Fram-
kvæmdum er að mestu lokið,
þó enn vanti upp á að klára
frágang og hluta af ungbarna-
lóðinni en nýr kjarni opnaði í
mars 2023.
Kostnaður og framkvæmd
Helga Björk Ólafsdóttir leikskóla-
stýra á Sóla segir að áður en farið
var í framkvæmdir við stækkun á
húsnæðinu sáu þau fram á biðlist-
ar myndu lengjast og því var farið
að huga að hvernig væri hægt að
bregðast við.
Á fundi fræðsluráð var fyrst
formlega vakin athygli á auk-
inni þörf á leikskólaplássum og
hvernig mætti bregðast við. Á
öðrum fundi fræðsluráðs var mál-
inu síðan vísað til bæjarráðs og
umhverfis- og framkvæmdarsviðs
til að kanna kaup eða leigu á
lausum einingum. Upphaflega var
lagt til 40-60 milljónir í fram-
kvæmdaráætlun í viðbyggingu
á leikskólanum Sóla. Þar sem
framkvæmdum er ekki lokið er
ekki hægt að gefa upp heildar-
kostnað sem stendur. Málinu var
vísað til fjárhagsáætlunarvinnu
næsta árs og vinnu við þriggja ára
áætlun. Bæjarráð tók málið fyrir á
fundi og var þá meðal annars lagt
til að drög við viðauka fjárhags-
áætlun 2022 verði lögð fram til
að mæta kostnaði sem af þessu
hlýst. Áframhaldandi kostnað-
ur vegna viðbyggingar verður
tekin inn í fjárhagsáætlun 2023.
Á framkvæmdar tímabilinu urðu
aðeins óverulegar breytingar sem
gengur og gerist þegar fram-
kvæmdir standa yfir. Þar sem um
ræðir bráðabirgða byggingu þurfti
ekki leyfi upprunalegs arkítekts
fyrir viðbyggingunni. Ákvörðun
um viðbygginguna á Sóla hafði
ekki áhrif á nýjan samning við
Hjallastefnuna um leikskóla-
þjónustu, en kostnaður eðlilega
eykst þar sem verið er að kaupa
meira leikskólarými af Hjalla-
stefnunni, segir Brynjar Ólafsson
framkvæmdarstjóri umhverfis- og
framkvæmdarsviðs.
Staðan í dag
Nýr kjarni í leikskólanum Sóla var
opnaður um miðjan mars 2023.
Þar sem árgangar hafa stækkað
síðustu ár og sú stefna bæjarins að
koma öllum 12 mánaða börnum
inn á leikskóla hefur í för með sér
aukna eftirspurn eftir leikskóla-
plássum. „Við náum nokkurn
veginn að halda því markmiði“,
segir Helga Björk.
Öll börn fædd árið 2021 eru
komin með pláss og börn fædd í
janúar til ágúst 2022 hafa fengið
pláss eða boð um pláss eftir sum-
arfrí. Nýji kjarninn getur tekið
við 16-18 börnum. Leikskólinn
Sóli starfar eftir Hjallastefnunni
þar sem kjarnar eru kynjaskiptir.
Nýji kjarninn er stúlknakjarni og
fyrrum ungbarnakjarninn er nú
drengjakjarni.
Niðurstaðan varð sú að við-
byggingin við leikskólann yrði
að kennarastofu og fyrrum
kennarastofan gerð að nýjum
kjarna, það rými er eins og
aðrir kjarnar í húsinu. Starfsfólk
leikskólans gat stjórnað hvernig
rýmið yrði settu upp og segja þau
jákvætt að geta gert þetta eftir
sínu höfði. „Það væri hagkvæmara
ef kennarar kæmu meira að upp-
setningu á leikskólahúsnæði“. Við
nýja kjarnann er pallur sem hugs-
aður er fyrir kerrur þeirra barna
sem sofa úti, en nýtist einnig sem
auka kennslurými. Markmið leik-
skólans er að sundurgreina hópa
og vera ekki með öll börn á sama
stað á sama tíma og því er gott að
hafa auka afmörkuð rými. „Það
vær dásamlegt ef allir kjarnar
væru með útskot og lóðin bíður
uppá það, þetta er bara spurning
um pening og ákvörðun“, segir
Helga Björk.
Staðan í leikskólanum getur
verið mjög sveiflukennd. Um tíma
voru laus pláss í leikskólanum en
í dag er hann fullsetinn. Við búum
á eyju og ef biðlistar lengjast þá
getum við ekki boðið börnum
pláss á öðrum svæðum. Skólarnir
þyrftu í raun að hafa auka rými til
að geta tekist á við þessar aðstæð-
ur frekar en að þrengja að okkur.
Til að bregðast við aukinni þörf á
leikskólaplássi var ákvörðun tekin
að hluti af árgangi 2018 byrjuðu
fyrr en ella á Víkinni. Fyrsti
hópurinn fór frá okkur 15.maí og
sá næsti í byrjun júní, segir Helga
Björk.
Heimgreiðslur í boði
Bæjarráð Vestmannaeyja sam-
þykkti í ágúst 2022 að greiða
sérstakar heimgreiðslur til
forráðamanna barna á aldrinum
12-16 mánaða frá 1. september
2022, hvort sem forráðamaður
þiggi leikskólapláss á því tímabili
eða ekki. Heimgreiðslur eru
einnig í boði fyrir þá forráðamenn
sem ekki fá leikskólapláss eftir 16
mánaða aldur.
Helga segir að heimgreiðslur geti
skipt foreldra miklu máli. Það eru
foreldrar sem velja heimgreiðslur
og vilja vera enn þá á biðlista.
„Við erum alltaf að tala um tíma
barnanna í örygginu heima“. Ef
heimgreiðslur væru örlítið hærri,
forráðamenn þurfa ekki að borga
leikskólagjald og möguleiki er á
að nýta skattkort maka, væru ef
til vill fleiri sem myndu nýta sér
þessa leið. Aðstæður eru auðvitað
misjafnar en ef það eru einhverjir
sem vilja vera lengur heima að
þá rýmkast til fyrir þá foreldra
sem þurfa nauðsynlega á plássi
að halda. Kennarar finna gríðar-
legan mun á 12 mánaða barni
annarsvegar og 16 mánaða barni
hinsvegar sem hefja leikskóla
göngu sína. „Það er bara jákvætt
að við höfum tvo valmöguleika,
segir Helga Björk.
Áskorun fyrir leikskólastarfið
Það er mikil áskorun fyrir
leikskólana að taka við svona
ungum börnum. Það er margt
sem þarf að læra inn á og aðlaga
að þeirra þörfum. „Skólar eru
að yngjast, það er bara takturinn
í samfélaginu“. Kennarar eru í
góðu samstarfi við aðra leikskóla
og skiptast á hugmundum hvað
virkar vel. Mjúkar þrautabrautir,
könnunarleikur og verðlaust efni
hefur reynst þessum yngsta hópi
vel. Mikilvægt er að fá fagfólk
strax fyrir yngstu börnin segir
Helga Björk að lokum.
Opnuð var ný deild á
leikskólanum Sóla í mars
Allir kjarnar saman á söngfundi.
Drengir í leik með kubba af stærri gerðinni.
DÍANA ÓLAFSDÓTTIR
diana@eyjafrett ir. is