Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2023, Blaðsíða 14
14 | | 15. júní 2023
Á föstudeginum bar hæst Sjó-
mannagolf sem Ísfélagið hefur
boðið upp á síðustu 17 ár. Fjöl-
menni var við vígslu minnisvarð-
ans á Skansinum. Um kvöldið
var svo rokkað feitt á tónleikum
Skonrokks í Höllinni.
Dagskrá laugardagsins hófst með
dorgveiðikeppni SJÓVE og Jötuns
á Nausthamarsbryggju. Vegleg
verðlaun fyrir stærsta fiskinn,
flesta fiska og fleira. Þátttaka var
góð en veiðin hefði mátt vera
meiri.
Sjaldan eða aldrei hafa fleiri ver-
ið á Sjómannafjörinu á Vigtartorgi
á laugardeginum þar sem séra
Viðar byrjaði á að blessa daginn.
Sjómannahátíðin í Höllinni á
laugardagskveldi fyrir sjómanna-
dag hefur unnið sér sess sem
glæsilegasta samkoma ársins í
Vestmannaeyjum og skemmtunin
núna stóð fyllilega undir vænting-
um.
Dagskráin á sunnudaginn var
hefðbundin. Byrjaði með skötu-
veislu á Sælandi, kaffi og Konna
hjá Stefáni og Svövu, sjómanna-
messu, minningarathöfn við
Landakirkju og lauk með dagskrá
á Stakkó þar sem sjómenn voru
heiðraðir og Hilmar Snorrason,
skólastjóri Slysvarnaskóla sjó-
manna hélt hátíðarræðuna.
„Dagurinn í dag er gjörsamlega
dauður dagur.“ Þessi orð segi ég
alls ekki vegna þess að dagurinn
í dag sé tilgangslaus eða í kjölfar
ölæðis gærkvöldsins og ég segi
þau heldur ekki sjómönnum til
vanvirðingar. Þessi orð hefði
langafi minn þó hiklaust haft
um daginn í dag. Mér er ekki
kunnugt um að langafi minn hafi
verið þunglyndur eða glímt við
aðra andlega veilu sem leiddi til
þessara orða en þó er viss ástæða
fyrir þeim,“ sagði séra Viðar í
predikun sinni sjómannames-
sunni þar sem hluti sjómanna-
dagsráðs átti eftirminnilega
innkomu í miðri messu.
Þarna vitnaði Viðar í langafa
sinn, Hallmar Helgason sjó-
mann á Húsavík sem lést árið
1990. Litríkur karl sem fannst
rauðu dagarnir þvælast fyrir.
„Honum fannst alltaf að þeir
dagar þar sem menn störfuðu
ekki neitt og væru ekki úti á sjó
væru dauðir dagar og sjómanna-
dagurinn var einn af þeim. Ekki
var starfað á sjómannadegi í þá
tíð og heilt yfir hefur það lítið
breyst,“ sagði Viðar sem man
ekki eftir þeim gamla. „Það eina
sem ég veit um hann eru þær
sögur sem hafa gengið manna
á milli í fjölskyldunni. Ég veit
t.d. og hef séð á ljósmyndum
að hann hafði ákaflega stórar
hendur. Á byggðasafninu á
Húsavík er m.a.s. hægt að sjá
málaða mynd af honum og þar
leyna sér ekki stórar krumlur
hans. Riffillinn sem hann heldur
á á myndinni er frekar líkur
skammbyssu í höndum hans.“
Fjölbreytt og fjölsótt dagskrá
sjómannadagshelgina
Þau mættu í skötuna, Greg Huges frá San Fransiskó, Hilmar Snorrason,
Áslaug Hansen kona hans og Marilyn Huges. Mynd: Ómar.
Konur í Eykyndli afhjúpuðu minnisvarðann á Skansinum. Þar eru nöfn yfir
500 sjómanna og annarra sem farist hafa á sjó. Mynd: Addi í London.
Verðlaunahafar í dorgveiðikeppninni, Jóel Huginsson, Gabríel Gauti Guð-
mundsson, Ívar Skæringur Vignisson og Hólmfríður Eldey Guðnadóttir.
Mynd: Addi í London.
Langafinn og dauðir dagar
Þétt setinn salur Hallarinnar á Sjómannaskemmtun. Mynd: Addi í London.
Samantekt: ÓMAR GARÐARSSON