Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2023, Page 14
14 | | 7. desember 2023
„Jólasíld Ísfélagsins nýtur mikilla
vinsælda og hefur magnið verið
aukið frá ári til árs vegna mikillar
eftirspurnar,“ segir Hildur Hrönn
Zoega Stefánsdóttir verkstjóri
í Ísfélaginu. Upphaflega var
jólasíldin hugsuð fyrir starfsmenn
og viðskiptavini Ísfélagsins en
frá árinu 2021 hóf Ísfélagið að
gefa bæjarbúum síld í tilefni 100
ára afmæli Ísfélagsins og segir
Hildur að þau muni halda því
áfram. „Vonandi verða bæjarbúar
ánægðir í ár því hún er mjög góð
eins og alltaf.“
Gott að gleðja fyrir jólin
Verkun á síldinni hefst í byrjun
nóvember, þar sem hún er skorin
í bita og pækluð. Þrem vikum
seinna er hún sett í fötur og því
tilbúin um mánaðarmótin nóvem-
ber - desember. Magnið af síld
er um eitt og hálft tonn en hefur
aukist frá ári til árs. Í ár var það í
fyrsta skipti sem sendar voru 50
fötur til Siglufjarðar vegna sam-
einingar Ísfélagsins og Ramma
ehf, starfsfólk á öllum vígstöðum
fær síld.
Hildur sér um allt framleiðslu-
ferlið og svo sjá starfsmenn
um að pakka síldinni. „Þetta er
mikil vinna og ábyrgð en það er
gott að geta gefið fólki síld fyrir
jólin. Upprunalega uppskriftin
kemur frá Sjávarútvegsnefnd en
henni hefur verið breytt og hún
betrumbætt, því við erum ekki
lengur að salta í tunnur. Við sjóð-
um vatnið alltaf og kælum áður
en við setjum kryddið í og það er
vinur okkar Grímur Kokkur sem
sýður vatnið fyrir okkur.“
Í ár var síldin var gefin 2. des-
ember í porti Ísfélagsins þar sem
bæjarbúar gátu rennt við og gripið
sér fötu. Um það bil 500 kíló af
síld voru gefin þann dag.
Bragðlaukar mismunandi milli
menningarheima
Í Ísfélaginu er starfshópurinn
orðinn breiðari. Það er því áhuga-
vert og gaman að sjá menningar-
mun þegar kemur að því hvernig
skuli verka síldina. „Fólk frá
Úkraínu v til dæmis bara fá edik-
sýrusíld, ekki með kryddlegi og
margir frá Póllandi líka. Að þeirra
mati vilja þeir meira salt og munu
þeir því fá síldina þannig verkaða.
Íslendingar eru meira í kryddleg-
inum og þessu sæta“ segir Hildur.
En hvað gerir hana svona góða?
„Þetta er leyniuppskrift. Það eru
aðeins tveir sem vita uppskrift-
ina en þeir mega aldrei ferðast
saman“ segir Hildur að lokum.
Jólasíld Ísfélagsins aldrei vinsælli
Starfsmönnum boðið upp á síld í
kaffitímanum.
„Það er áratugalöng hefð fyrir því
að halda jólakaffi fyrir starfsfólk
og fjölskyldur Vinnslustöðv-
arinnar og dótturfélaga. Í ár sá
Kvenfélagið Líkn um veitingarn-
ar. Um er að ræða skemmtilega og
notalega stund og í ár mættu um
280 í kaffið,“ sagði Lilja Björg
Arngrímsdóttir, mannauðsstjóri
Vinnslustöðvarinnar um þennan
skemmtilega sið félagsins.
„Á meðan fullorðna fólkið naut
tónlistar í flutningi þeirra Sæþórs
Vídó og Kristínar Halldórsdóttur
og gæddi sér á kræsingunum
komu jólasveininn og Trölli og
skemmtu krökkunum. Einn af
hápunktum þessa viðburðar er
þegar starfsfólki sem hefur átt
stórafmæli á árinu eru færðar af-
mæliskveðjur og þeim sem lokið
hafa störfum vegna aldurs eru
færðar starfslokakveðjur. Í ár voru
25 starfsmenn heiðraðir af þessu
tilefni og fá allir armbandsúr og
blómvönd að gjöf.“
Starfsfólk heiðrað í jólakaffi
Aftari röð frá vinstri: Svavar Valtýr Stefánsson, Sigurbjörn Egilsson, Fransisco Vilas Boas og Ágúst Ingi Jónsson.
Fremri röð frá vinstri: Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, Elva Björk Birgisdóttir, Gerður Garðarsdóttir, Kristján Hauksson,
Olena Drohzha, Joao José Sequeira, Orlando Soares, Gísli Erlingsson og Lilja Björg Arngrímsdóttir. Myndir Addi í London.