Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2023, Qupperneq 18
18 | | 7. desember 2023
Hjúkrunarfræðingurinn Auður
Ásgeirsdóttir rekur ásamt Gunnari
Inga Gíslasyni eiginmanni sínum
ferðaþjónustufyrirtækið Viking
Tours. Þangað til á þessu ári hefur
Auður starfað sem hjúkrunar-
fræðingur en sinnt ferðaþjón-
ustunni í hjáverkum. Hún ákvað
þó að söðla um í sumar og sagði
starfi sínu við Heilbrigðisstofn-
unina lausu og sneri sér alfarið að
ferðaþjónustu. Auður sinnir því
jafnt að starfa sem leiðsögumaður
og sem rútubílstjóri. Auður tók
rútuprófið árið 2020 og kann vel
við sig undir stýri.
„Þetta er mjög skemmtilegt starf,
en getur líka verið krefjandi í
lengri ferðum ef eitthvað er að
veðri. En það er mjög gaman að
keyra svona stóran bíl og einnig
að vera alltaf að vinna með mjög
fjölbreyttu og skemmtilegu fólki.
Yfirleitt er fólk að koma í rútuferð
til að hafa gaman.“
Hlutfall kvenna að aukast
Hversu algengt er það á íslandi
að konur séu að keyra stórar
rútur? „Ég er ekki alveg viss með
hlutfall kvenna í stéttinni en held
að það sé alveg að aukast. Ég
mæti frekar oft kvenbílstjóra á
ferðinni upp á landi. En karlmenn
eru enn í miklum meirihluta.“
„Ha er stelpa að keyra“
Auður segi þó að erlendir ferða-
menn sem eru jú stór hluti þeirra
sem hún keyrir um reki oft upp
stór augu þegar það er kona sem
situr við stýrið á rútunni og hún
hafi fengið alla vega viðbrögð
í starfi sínu. „Algengast er að
fólk sé mjög hissa að sjá mig við
stýrið. Hef alveg fengið: „Ha er
stelpa að keyra“. En hef samt bara
fengið jákvæð viðbrögð frá bæði
körlum og konum og margar af
þeim konum sem koma upp í rút-
una eru sérstaklega ánægðar. Það
er mjög algengt að þær segi eftir
að ég er búin að fara upp á Stór-
höfða, „vá vel gert“, það finnst
þeim mjög tilkomumikið. En mér
er oft mikið hrósað fyrir aksturinn
eftir ferðirnar, kannski kemur
þetta þeim á óvart að við getum
verið mjög góðar að keyra.“
Finnst ég rosalega sterk
Þau hjónin hafa tekið að sér
síðustu ár að keyra með ind-
verska hópa um landið og segir
Auður þær ferðir vera sérstaklega
skemmtilegar. „Þeim finnst þetta
mjög merkilegt að kona skuli vera
að keyra, það er ekki mikið um
kvenkyns bílstjóra í Indlandi. En
þau eru mjög ánægð með mig og
þurfa mikið að taka myndir með
mér. Einnig hef ég verið mikið
verið sýnd ættingjum í myndsím-
tölum og ég þurft að heilsa upp
á marga ættingja sem trúa þessu
einfaldlega ekki.“ Auður segir það
ekki það eina sem kom Indverj-
unum í opna skjöldu. „Það sem
kemur þeim mest á óvart þegar ég
var að hlaða töskunum inn í bíl og
losa eins og enginn sé morgun-
dagurinn og mennirnir horfðu
bara agndofa á. Þeim fannst ég
vera rosalega sterk.“
Aðspurð hvort að hún geti mælt
með þessu starfi fyrir konur
er Auður ekki í nokkrum vafa.
„Ég mæli eindregið með þessu
starfi fyrir konur og í rauninni
hvern sem er. Þetta er virkilega
skemmtilegt og býður upp á
mjög fjölbreytta vinnu, einnig
gott að geta gripið í þetta starf í
aukavinnu,“ sagði rútubílstjórinn
kát að endingu.
Trúa ekki að
rútubílstjórinn sé kona
Alltaf að vinna með mjög fjölbreyttu og skemmtilegu fólki
” Ég mæli
eindregið með
þessu starfi
fyrir konur
SINDRI ÓLAFSSON
sindri@eyjafrett ir. is
Auður kann vel við sig í bílstjórasætinu.
Gunnar Ingi og Auður við Jöulsárlón.
Það leynir sér ekki hvaðan rútan er.