Stuðlaberg - 01.06.2014, Síða 6

Stuðlaberg - 01.06.2014, Síða 6
6 STUÐLABERG 1/2014 Eitt af skáldunum sem lásu upp í Háskóla- bíói var Eva Hauksdóttir. Hún vakti athygli fyrir nákvæma og vel útfærða bragfræði, sbr. eftirfarandi ljóð sem hún kallar Þel: Fram úr hjartans fylgsnum særa fornar rúnir nýjan brag. Vildi ég með þér vonir næra vakna til þín sérhvern dag. Ást þín heit og höndin blíða héluð þíða kvæðin mín. Frosin orð úr fjötrum losa, mosaaugun mjúku brosa, má ég vera dindilhosan þín? Bláar nætur, bjarta daga bergja af þinni fræðalind. Skapa, galdra, skemma, laga skálda úr brotum nýja mynd. Vita af þér vakin, sofin vekja spurn og svala þrá. Rifa segl og björgum bifa, lifa til að lesa og skrifa ljóð, á meðan ævin tifar hjá. Davíð Þór Jónsson guðfræðingur er þekkt- ur fyrir beinskeyttan kveðskap og hér skefur hann ekki utan af í kvæði sem hann kallar Leifur og Lalli: Leifur djöfull og Lalli lögðu mig í einelti í skóla. Ég var barinn á hverju balli, brókaður, látinn góla, hrakyrtur, spottaður, hæddur, hrópandi úr buxunum klæddur. Ég vildi að ég væri ekki fæddur svona voðaleg kveif árin sem ég var alltaf hræddur við ófétin Lalla og Leif. En nú er ég eldri að árum og ekki lengur í sárum, framámaður á Fróni og flestir virða mig, en Leifur er lassaróni og Lalli hengdi sig. Kannski er ekki alltaf klippt og skorið hverjum er bjartast bernskuvorið. Eitt af hinum svokölluðu skáldum var Örlygur Benediktsson, tónlistarmaður. Hann flutti meðal annars magnað kvæði, Til sölu, ort á tímum þennslunnar um græðgina og elt- ingaleikinn við hið efnislega: Seldu mér hugmynd um hagnað og auð, svo hamingju- verði‘ ekki ævi mín snauð, svo alltaf í kredit ég keypt fái brauð og kavíar, lúxus og eðal. Tilgangur helgar hvert trúgirnivekjandi meðal. Seldu mér loforð um viðskiptavild. Verzla má ókeypis! Þetta er snilld! Því punktarnir ávaxta pundin mín gild, svo pæla ég þarf ekki‘ í neinu. Frábært – að lifa með allt (en þó ekkert) á hreinu. Seldu mér innantómt, gullhúðað grín. Glópskunnar ljómi úr augum mér skín, ég þrái að teyga þitt tilboðavín, & treysti‘ að ég verði‘ aldrei þunnur. Samþykki hikstalaust allt, það sem mælir þinn munnur. Seldu mér ekta & seldu mér feik. Seldu mér tilbúinn raunveruleik. Seldu mér útrás og alþjóðlegt meik í eilífðarmarkaðshagkerfi. Seldu mér fölsun á sannleikans alvörugervi. Seldu mér skrum, til að skreyta mitt hús, ég skrif‘ undir hvað sem er, samvinnufús. Fagnandi býður mér djöfullinn dús, ég dýrka hans loforðagjálfur. Seldu mér einhverja hugmynd! Ég hef enga sjálfur. RIA.

x

Stuðlaberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.