Stuðlaberg - 01.06.2014, Qupperneq 7
STUÐLABERG 1/2014 7
Annað landsmót kvæðamanna var haldið
á Siglufirði helgina 28.–30. mars s.l. Mótið
tókst í alla staði mjög vel enda veður stór-
kostlegt og margir kvæðamenn mættir til að
skemmta sér saman.
Mótið hófst með dýrindis málsverði og
kveðskap á Hannes Boy Café. Síðan var geng-
ið yfir í Bátahús Síldarminjasafnsins þar sem
Steindór Andersen, kvæðamaður, og Hilmar
Örn Hilmarsson, tónlistarmaður, göldruðu
fram töfrandi hljóma með þýðri kveðskapar-
rödd Steindórs, steinaspili Páls á Húsafelli
og hljóðgerfli Hilmars. Stólar voru fyrir eitt
hundrað gesti á bryggjunni fyrir framan
gamla síldarskipið og var hvert sæti setið.
Stemmingin í Bátahúsinu var seiðmögnuð og
voru þeir félagar klappaðir upp aftur og aftur.
Að loknum tónleikum söfnuðust kvæða-
menn saman á veitingastaðnum og barnum
Torginu þar sem var kveðið fram undir miðnætti.
Kl. 10 á laugardagsmorgni hófst svo fyrsta
námskeið dagsins þar sem Bára Grímsdóttir,
Kveðið, ort og dansað
Landsmót kvæðamanna á Siglufirði í mars 2014
kvæðakona, kenndi þjóðlög og tvísöngva.
Þangað voru mættir allir gestir mótsins,
kvæðamenn frá Norðurlandi, Suðurlandi og
Austurlandi. Eftir hádegi skiptist hópurinn í
þrennt þar eð Ragnar Ingi Aðalsteinsson fór
að kenna bragfræði og Steindór Andersen
kveðskaparlist.
Eftir stutt hlé til gönguferða úti í fögrum sól-
böðuðum firðinum hófst kvöldvakan, hápunkt-
ur samkomunnar. Borðaður var glæsilegur
málsverður í matsal Rauðku og kvæðamenn
kepptust við að skemmta sjálfum sér og öðrum
með frumlegri sem og hefðbundinni nálgun
á kveðskaparflutning. Þegar allir voru orðnir
mettir af mat og kveðskap mætti hljómsveitin
Heldrimenn með tvær harmoníkur, söngvara
og trommara og dró alla út á dansgólfið. Á mið-
nætti voru allir búnir að fá nóg og hélt hver til
síns næturstaðar eftir dásamlegan dag.
Á sunnudegi hófst dagskráin aftur kl. 10
um morgun og nú var komið að aðalfundi
Stemmu, landssamtaka kvæðamanna. Fund-
urinn var skemmtilegur enda hljómaði kveð-
skapur frá hverjum hálsi inn á milli dagskrár-
liða. Aðildarfélög Stemmu gerðu grein fyrir
starfi sínu á liðnu ári, áhersluatriði þess næsta
voru rædd og sitjandi stjórn endurkjörin.
Stemma er einungis eins árs gömul því
kvæðamenn hittust á sínu fyrsta landsmóti
fyrir rúmu ári og stofnuðu samtökin. Þá
þekktu menn ekki hver annan og stemm-
ingin var hógvær og hikandi. Í þetta sinn var
allt annað upp á teningnum – kvæðamenn
heilsuðust nú sem gamlir kunningar og skap-
aðist einhuga stemming og þróttur til að svara
þeirri áskorun að vekja hina íslensku kveð-
skaparlist aftur til vegs og virðingar.
Guðrún Ingimundardóttir
Kvæðamenn Gefjunar frá vinstri: Þór
Sigurðsson, Rósa María Stefánsdóttir, Svan-
dís Svavarsdóttir, Þórarinn Hjartarson, Krist-
ín Sigtryggsdóttir, Ása Ketilsdóttir, Anna
Halldóra Sigtryggsdóttir.