Stuðlaberg - 01.06.2014, Síða 8

Stuðlaberg - 01.06.2014, Síða 8
8 STUÐLABERG 1/2014 Davíð Stefánsson frá Fagraskógi hefur lýst því þegar Matthías Jochums- son kvaddi Stephan G. Stephansson á Sigurhæðum sumarið 1917. Stephan var þá á leið frá Akureyri, en hann kom þar við í einu heimsókn sinni til ætt- landsins: „Þarna stóðu þeir, tveir höfðingjar andans, sinn úr hvorri heimsálfu, en þó synir sömu þjóðar, báðir rammíslensk- ir. Báðir höfðu þeir unnið stórvirki, báðir hlotið ást og lotningu Íslendinga ... Loks rétti Stephan G. fram æðabera, skjálfandi höndina. En þá breiddi Matthías út faðminn, vafði Stephan örmum og – kyssti hann. Matthías grét. Stephan grét ekki ... En það vissi ég þá og seinna, að skilnaðurinn var honum mun þyngri og sárari en séra Matth- íasi. Það var eins og hann hefði kvatt allt Ísland og alla íslensku þjóðina hérna megin hafsins í síðasta sinn, með þessum eina kossi. Úr þessu var hann á heimleið – vestur.“ Matthías lést 18. nóvember 1920, 85 ára. Stephan lést 9. ágúst 1927, 73 ára. Tveir andans höfðingjar Stundum hendir það limrusmiði að setja ljóðstaf á forlið. Þetta er auðvitað brot á brag- reglum og þarf ekki að fjölyrða um það. For- liðir eru áhersluléttir og geta þess vegna ekki borið ljóðstaf. Ástæða þess að þetta hendir frekar í limrum en í kveðskap undir öðrum bragarháttum er sú að limrur eru byggðar á þríliðum og algengt að forliðir séu tvö at- kvæði, stundum þrjú. En bragurinn hefur margar hliðar og óvænt útskot frá beinu brautinni. Ég rakst á limru eftir þann góða hagyrðing Skarphéðin Ásbjörnsson þar sem stuðlað er á forlið en samt sem áður hugnast mér þessi kveðskapur ágætlega. Ég sé reglu- brotið ‒ en það truflar mig ekki: Það fullyrðir feitlagna Jenna, að feikilegt ofát og spenna, og lostanna líkn, lágt sjálfsmat og fíkn sé allt saman öðrum að kenna. Í fjórðu línu er orðið lágt að sjálfsögðu forliður (nema við hugsum okkur að orðin lágt sjálfsmat geri einn þrílið). Þetta er lýsing- arorð, með mjög sterka stöðu gagnvart öðrum orðum í setningunni, og þess vegna dregur það til sín mun meiri áherslu en forliðir gera að jafnaði (lýsingarorð eru of sterk til að vera í forlið, en það er efni í aðra grein). Ljóðstaf- urinn fær þess vegna þann þunga sem hann þarf. Auk þess er limran afar vel gerð að öðru leyti, bæði hvað varðar form og ekki síður efni og þess vegna leyfist höfundi frekar að keyra aðeins út í kantinn. Gaman væri að heyra frá hagorðu fólki hvað því finnst um þessa sameiginlegu brag- fræði okkar Skarphéðins (þ.e. hann yrkir, ég samþykki). Líklegt er að um þetta séu skoð- anir eitthvað skiptar. RIA. Stuðlað á forlið Bragfræðilegt álitamál

x

Stuðlaberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.