Stuðlaberg - 01.06.2014, Qupperneq 9

Stuðlaberg - 01.06.2014, Qupperneq 9
STUÐLABERG 1/2014 9 Að vanda var haft samband við nokkra hagyrðinga og þeir beðnir að yrkja um mál- efni sem er á döfinni meðan blaðið er í vinnslu. Að þessu sinni var efnið afstaðan til Evrópu- sambandsins og það ekki skilgreint nánar. Hagyrðingar gátu valið um það hvernig þeir fjölluðu um efnið og frá hvaða hlið þeir vildu skoða það. Mikið hefur gengið á undanfarið út af umsóknarferlinu, sem kunnugt er, og sýnst sitt hverjum. Anton Helgi Jónsson talar um ástandið í Evrópusambandsgáttinni: Þungt ég stíg á þröskuldinn þar er gott að dvelja meðan hvorki út né inn auðnast mér að velja. Höskuldur Búi Jónsson hefur ákveðna skoð- un á ferlinu þó að endanlegt markmið sé hulið: Þó að vissan varla sé væn né til að hrósa. Um hið deilda ESB er samt best að kjósa. Ingi Heiðmar Jónsson, kennari og organ- isti á Selfossi og Blönduósi, setur fram það sem hann kallar gátu: Ekki vill í ESB ein sem veitir ríkum fé lætur andsvör aum í té almúgann í setur hné. Páll Jónsson, bóndi í Hlíð á Langanesi, fékk tvær línur lánaðar og afmarkar þær kurt- eislega með gæsalöppum: „Búkolla mín bububu,“ burt skal leidd úr fjósinu, inn svo flytjum ost og smér þó einhver durgur skæli. Já þetta frelsi indælt er uppar fá að leika sér, „afsakið meðan ég æli.“ Rebekka Hlín Heimisdóttir setur yrkisefn- ið upp í myndrænt form. Hún er ekki fyrsta skáldið sem líkir landinu okkar við konu: Sumir karlmenn sambönd þrá, sýnast stundum óðir, aðrir höfnun óvænt fá – ekki konu í rúmið ná. Ísland: einstæð móðir. Lesendum er eftirlátið að lesa í þessa mynd. Skafti Steinólfsson yrkir: Karpar þjóðin, kastar frið. Keypt er sála okkar. Klofnar tungur keppast við. Klofna líka flokkar. Bjarki Karlsson kveðst hafa lesið í blöðum langorða ályktun aðalfundar Landssambands kúabænda og kom efni hennar fyrir í einni stöku: Verðið lækkar, vantar fé veldur kvóti ólgu. Aldrei þrífist ESB, eyðum júgurbólgu. Stuðlaberg þakkar hagyrðingum vel samdar vísur og óskar þeim alls hins besta. RIA Hvað leynist í pokanum? Hagyrðingar huga að Evrópusambandsaðild

x

Stuðlaberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.