Stuðlaberg - 01.06.2014, Page 11
STUÐLABERG 1/2014 11
Stuðla og rím í brjósti ber ég
bernskudögum mínum frá.
Sjötíu og fjórtán ára er ég
önfirskur að heyra og sjá.
Fékk ég boð í bréfi gildu
bjartar vonir glæddi það.
Hagyrðingar halda vildu
hátíð sína á þessum stað.
Guðm. Ingi Kristjánsson
Við skulum kalla upp vísur hér
varast spjall af heimsku
stakan snjalla arfur er
sem ei má falla í gleymsku.
Væri örðugt vonarmátt
vekja gjörði ríman.
Höldum vörð um þennan þátt
þó að hörð sé glíman.
Jói í Stapa
Í síðasta tölublaði Stuðlabergs var sagt
frá stuttstafahættinum sem stundum er
kenndur við Stefán frá Hvítadal. Það var
þó alls ekki Stefán sem fann upp þetta
kveðskaparafbrigði. Í Safni til bragfræði
íslenzkra rímna að fornu og nýju eftir sr.
Helga Sigurðsson á Melum (1891) er þessi
háttur talinn upp ásamt öðrum bragar-
háttum (bls. 34). Tvö dæmi eru sýnd í bók
Helga, bls. 69 og 70 (dæmi 5 og 6). Höfund-
arnir voru Jón Jónsson, almennt nefndur
langur (fyrri vísan) og Ólafur Björnsson
skipasmiður í Munaðarhól (seinni vísan):
Mennirnir á marar jór
munu árar reyna;
ægir var í unun rór
ömun vann ei neina.
Seinni vísan er frumsniðhend:
Reynir mána Óma ör
unir í vina ranni;
Rínar óna væna vör
venur raun úr manni.
Eins og lesendur muna var í síðasta
blaði skorað á hagyrðinga að yrkja undir
stuttstafahættinum og heitið verðlaunum
fyrir bestu vísurnar. Fyrstu verðlaun hlaut
Sigurlín Hermannsdóttir fyrir þessa stutt-
stafadróttkveðu (eðli málsins samkvæmt
eru hér aðeins notaðir lágstafir):
úr normi er rúnum rænir
rís sú smáa vísa.
snör er svása snerran
snúin, sansi rúin.
saumum eina saman
svona má æ vona.
verri var ei nærri
en vísan mín mun rísa.
Önnur verðlaun komu í hlut Ármanns
Þorgrímssonar:
saman rerum einni ár
enn var vor í sinni
en armurinn er aumur, sár
eru á rænu minni.
Og þriðju verðlaun hlaut Sigurbjörg
Björgvinsdóttir:
nú vaxa svona mannamor
menn sem vinna svanna
snúinn er nú vinur vor
í von um sannan ranna.
Stuðlaberg þakkar þátttökuna og óskar
hagyrðingunum alls hins besta. RIA.
„… rís sú smáa vísa“
Ort undir stuttstafahætti