Stuðlaberg - 01.06.2014, Síða 12

Stuðlaberg - 01.06.2014, Síða 12
12 STUÐLABERG 1/2014 Ráðist hefur verið í allviðamikið verk sem felst í að búa til nýtt efni um bókstafi og hljóð þeirra fyrir börn í leik- og grunnskólum. Efnið er hugsað sem undirbúningur að lestrarnámi, ungra barna en gæti jafnframt nýst sem kennsluefni við lestrarkennslu yngstu barna í grunnskóla. Það eru Steinunn Torfadóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Ís- lands, og Ragnar Ingi Aðalsteinsson, fyrrver- andi aðjúnkt við sömu stofnun, sem standa að verkefninu og stýra því. Þrjátíu og tveir þekktir hagyrðingar fengu það verkefni að búa til vísur um stafina, og orti hver þeirra um einn staf. Textarnir eru stuttir og auðskiljanlegir, enda ætlaðir leik- skólabörnum og yngstu börnum í grunnskóla. Þeir eru ortir undir þekktum lögum sem flest börn þekkja. Stefnt er að útgáfu á árinu Átakið fór af stað í haust og nú í apríl voru loks allir textarnir tilbúnir. Nú er verið að lesa þá yfir og síðan verður farið að huga að út- gáfu. Tilgangurinn með útgáfunni er að gefa börnunum tækifæri til að læra um stafina gegnum rétt gerða, lipra og skemmtilega texta sem þau geta sungið. Þættir eins og hrynjandi ljóðs, stuðlasetning og rím höfða mjög til barna og hafa jákvæð áhrif á málþroskann og gera börnum auðveldara með að festa bók- stafina í minni. Ljóðlist og læsi Listin að lesa byggist á samvinnu margra þátta í hugrænni starfsemi og í tæpa hálfa öld hafa rannsakendur vitað að leiðin að dulmáli bókstafanna liggur í gegnum hljóðkerfi tungu- málsins. En þar er ekki öll sagan sögð. Eitt er að lesa úr bókstafstáknunum orð og texta og annað að skilja það sem lesið er. Samkvæmt hinum virta heilasérfræðingi, Stanislas De- haene, hefur heili mannsins enga meðfædda stöð eða starfsemi til að vinna með lestur og þess vegna verður hver og einn einstaklingur að móta leiðina og byggja upp gagnagrunn sem best nýtist við lestur, lesskilning, stafsetningu og ritun. Færni barna í tungumálinu er sterk- asti forspárþátturinn um gengi í lestrarnámi en fyrstu sex ár ævinnar ráða oftast úrslitum um hvernig til tekst að ná tökum á talmálinu. Eftir það verður lestur ein meginuppspretta orðaforða og þekkingar á tungumálinu og því ræðst framhald málþróunar í og með af því hvernig börnum gengur að ná tökum á lestrar- færni. Gegnum næmi hljóðkerfis- og hljóðavit- undar safnar einstaklingurinn upplýsingum um hljóðfræðilega uppbyggingu orða og fyrir hvaða hljóð hver bókstafur stendur, sem aftur gerir honum kleift að leysa dulkóða ritmáls- ins. Þekking barna á regluverki tungumálsins; málfræði, röðun orða í setningar, uppbygg- ingu málsgreina, ásamt stærð orðaforða og vit- und um merkingarlega uppbyggingu orða eru þættir sem stuðla að hæfni barna við að skilja það sem lesið er og að geta tjáð sig á ritmáli. Lestrarfærni er í dag talin ein mikilvægasta undirstöðufærni sem börn þurfa að ná tökum á eigi þau að öðlast þau lífsgæði sem nútíma samfélag hefur upp á að bjóða. Lestrargrunnur Eins og áður segir er grunnur að lestrar- færni lagður snemma á ævi barnisins. Dehaene (2009) leggur áherslu á að barnið safni upplýs- ingum um regluverk tungumálsins, merkingu Einn er stafur út í bæ Þrjátíu og tvær vísur um stafrófið

x

Stuðlaberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.