Stuðlaberg - 01.06.2014, Síða 13
STUÐLABERG 1/2014 13
orða og hljóðfræðlega uppbyggingu og búi sér
sjálft til eigin gagnagrunn. Því skiptir miklu að
örvunin sé öflug og skilvirk. Sagnalist, söngur
og ljóðlist sem lifað hefur með þjóðinni og flust
kynslóð fram af kynslóð, er ein öflugasta leiðin
til að byggja upp þann grunn sem gerir börn-
um kleift að takst á við lestrarnám. Ég minnist
ömmu minnar og afa sem tóku barnabörn og
barnabarnabörn á kné sér og sungu eða fluttu
þeim ljóð, þulur, vísur og sögur við ótrúlega
eftirtekt og móttækileika barnshugans, bæði
við að festa rím, hrynjandi, takt og tóna ásamt
merkingu orðanna sem stundum eins og við
öll þekkjum lykst ekki upp fyrr en síðar á æv-
inni. En það mikilvægasta er að gagnagrunnur
orðanna, sjálft orðsafnið sé fyrir hendi þegar
þar að kemur.
Í þeim fræðum sem í dag kallast
„bernskulæsi“ er þetta samspil barns við
umhverfi sitt kortlagt annars vegar með hliðsjón
af hljóðkerfislegri uppbyggingu tungumálsins
og hins vegar merkingu og lögð er rík áhersla
á örvunar- og kennsluþáttinn. Í dag sýnist svo
vera að söngur og kveðskapur sé á undanhaldi
á heimilum landsmanna enda heyrir líklega til
undantekninga að stórfjölskyldan búi undir
sama þaki eins og títt var meðal fyrri kynslóða.
Eigi að síður er mikilvægt að halda þeirri
þekkingu og þeim hefðum í heiðri sem lagt geta
börnum lið á leið til læsis.
Hagyrðingarnir bregðast ekki
Liður í þeirri viðleitni var að leita sam-
starfs við hagyrðingana. Voru þeir beðnir að
búa til grípandi vísur um bókstafina og hljóð
þeirra, helst við lög sem auðvelt er að raula.
Vísurnar eru hugsaðar fyrir börn frá leik-
skólaaldri og upp í fyrsta bekk grunnskóla. Í
eftirfarandi ferskeytlu eftir Sigrúnu Haralds-
dóttur nær barnshugurinn ekki aðeins að
meðtaka heiti bókstafins og hljóð hans heldur
einnig nýtt hugtak og annars konar framsetn-
ingu merkingar en tíðkast í venjulegu talmáli.
Mjúka og holla mjölgrautinn
mamma er að sjóða,
bráðum upp í munninn minn
matinn læt ég góða.
mmmmm :)
Þórarinn Hjartarson gerði fallega sam-
hendu um stafinn Æ:
Einn er stafur út í bæ
alltaf hreint með sorgarblæ.
Sama hvað þú segir hæ!
segir hann bara æ, æ, æ!
Til að syngja þessar vísur má nota ýmis
lög. Sérstaklega á það við um þá fyrri, sem er
ort undir mjög algengum bragarhætti.
Björn Ingólfsson setti saman vísu undir
laginu Haf, blikandi haf, sem kvartettinn Fóst-
bræður söng á sínum tíma við texta Friðjóns
Þórðarsonar:
Runólfur rúði í gær
rollurnar mórauðu tvær,
þá jörmuðu hressar þær hornprúðu ær
en hundurinn urraði á þær.
RRRRRRR!
Og Örlygur Ben. orti tvær vísur undir lag-
inu A, B, C, D, E, F, G, ...
Steinunn Torfadóttir.