Stuðlaberg - 01.06.2014, Side 15
STUÐLABERG 1/2014 15
Hin árlega botnasamkeppni grunnskól-
anna fór fram í tengslum við dag íslenskrar
tungu 16. nóvember 2013, þriðja árið í röð.
Það er Námsgagnastofnun sem stendur fyrir
þessari keppni. Að venju voru veitt þrenn
verðlaun: fyrir yngsta stig, miðstig og ung-
lingastig. Á yngsta stigi var horft sérstaklega
til innihalds vísubotnsins og rímsins. Hlut-
skarpastur var Brimir J. Búason, nemandi í
4. bekk Þingeyjarskóla í Þingeyjarsveit (deild
Litlulaugaskóla) (vísubotnarnir eru feitletr-
aðir):
Sjáið hvernig sólin skín,
sendir geisla inn til mín.
Máninn stóri mætir senn
með stjörnur líkt og fylgdarmenn.
Ef til vill finnst einhverjum að stuðlasetn-
ing hér sé ekki alveg samkvæmt reglunum.
Hægt er að fallast á það (höfuðstafurinn er á
orði sem hlýtur að teljast forliður) en rétt er
að benda á að á yngsta stiginu var ekki gerð
ákveðin krafa um ljóðstafi. Auk þess skal les-
endum til gamans bent á að skoða til dæmis
11. Passíusálm, 4. vers, braglínur nr. 7 og 8.
Á miðstigi voru nemendur beðnir um að
huga vel að ljóðstöfum og rími. Verðlaunin
hlaut Eyþór Alexander Hallsson, sem er nem-
andi í 7. bekk. Hann er einnig í Þingeyjarskóla
í Þingeyjarsveit (deild Litlulaugaskóla):
Ligg ég hér og les í bók,
létt er mér í skapi.
Eyðir skrímslum Ofurbrók,
áttum þó hann tapi.
Á unglingastigi var gerð krafa um ljóðstafi
og rím. Verðlaunin komu í hlut Rögnu Bene-
diktu Steingrímsdóttur, nemanda í 8. bekk
Brekkubæjarskóla á Akranesi:
Létt er okkar lærdómsbraut,
líður brátt að jólum.
Allir leysa létta þraut
í lífsins góðu skólum.
Stuðlaberg óskar þessum hagorðu ung-
mennum til hamingju með verðlaun og vel
gerðar vísur.
RIA.
Ragna Benedikta Steingrímsdóttir.
Máninn stóri mætir senn
Grunnskólanemendur botna vísur
Brimir J. Búason og Eyþór Alexander Hallsson.