Stuðlaberg - 01.06.2014, Page 16

Stuðlaberg - 01.06.2014, Page 16
16 STUÐLABERG 1/2014 Vísnagleði í stað ræðuhalda Afmælishóf í Stakkahlíð Þann 15. janúar sl. hélt ritstjóri Stuðlabergs upp á sjötugsafmæli sitt í félagi við konu sína, Sigurlínu Davíðsdóttur prófessor, um leið og þau hjón kvöddu vinnustað sinn, Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Veislan var haldin í Fjöru, matsal húss Menntavísindasviðs við Stakkahlíð. Ræður voru ekki leyfðar í veislunni en þess í stað fluttar vísur, sungnir söngvar og kveðnar rímur sem ortar voru af þessu tilefni. Fer hér á eftir sýnishorn af kveðskapnum: Vísnagleðin hófst með því að lagðar voru nokkrar spurningar fyrir ritstjórann og konu hans en áður en að því kom að svara þeim varpaði Sigurlína fram eftirfarandi athuga- semd: Í ungdómsins bulli og bralli sem var brösótt í alskásta falli og hreint ekki lítið, mér hefði þótt skrýtið að sofa hjá sjötugum karli. Og auðvitað var spurt um fyrstu kynnin. Sigurlína svaraði með limru þar sem hún ljóstrar upp 35 ára gömlu leyndarmáli og leysir auk þess á hagkvæman hátt vandamál vegna rímþurrðar. Þetta er hægt að leyfa sér í limrum, gengur í 2. braglínu, eins og hér er gert, en sennilega hvergi annars staðar: Ég neita því ekki, það neistaði en nú skal frá skjóðunni leyst af því að í langferð var lagt og nú loks get ég sagt: Það var fíatinn hans sem mín freistaði. Ritstjórinn svaraði spurningunni afar hreinskilnislega: Í þá daga umgekkst ég alls konar bullur og auðvitað þykir mér leitt að ég var svo moldöskumígandi fullur ég man bara hreint ekki neitt. Þau voru líka beðin að nefna helstu kosti og galla hvort annars og Sigurlína gerði hvoru tveggja skil í sömu vísunni. Hvað er galli og hvað er kostur? Ef reyni ég galla og kosti að kynna þá kvölds og morgna hann virðist fús til að vinna og vinna og vinna og vinna. Ég veit ekki hvort þetta telst í plús. Og að lokum var spurt um væntingar varðandi sambúðina í ellinni. Ritstjóri sá fyrir sér tiltölulega viðkunnanlegt ævikvöld: Ég fagna nú ellinni allri með eiginkonunni snjallri ‒ ósætti horfið og eymd. Það mun okkar samskipti mýkja að minnið er farið að svíkja ‒ og ágreiningsefnin gleymd. Ragnar Ingi og Sigurlína hlýða á kvæða- menn. G un na r K r. Si gu rjó ns so n

x

Stuðlaberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.