Stuðlaberg - 01.06.2014, Síða 19

Stuðlaberg - 01.06.2014, Síða 19
STUÐLABERG 1/2014 19 bragfræðikennslu. Mér finnst þetta yfirleitt ganga ljómandi vel. Málin eiga það hins vegar til að flækjast svolítið þegar á að spreyta sig á túlkun ljóða og þekkja alls kyns hugtök sem tengjast slíkri vinnu svo sem vísun, endurtekningar, minni, myndhverfingar, viðlíkingar og fleira slíkt. Bragfræðin sjálf er sjaldnast flókin. Verður þú vör við aukinn áhuga nemenda á hefð- bundnum ljóðum eftir að þeir hafa lært bragfræði? Mér finnst þeir hafa aukna ánægju af því að hlusta á hefðbundin ljóð lesin. Væntanlega tengist það m.a. hrynjandi ljóðsins sem kennari getur komið til skila en nemandi áttar sig ekki alltaf á sjálfur. Hrynjandin er auðvitað mikilvæg hvað varðar innihald og samhengi. Það er hlutverk grunnskóla að leggja sem fjölbreyttastan grunn til framtíðar og svo er misjafnt hvaða hluti grunnsins nýtist hverjum og einum. Við eigum misjafnt líf fyrir höndum og því dýrmætt að eiga fjölbreytt veganesti, m.a. úr grunnskóla. Hvert er uppáhaldsskáldið, hefðbundið að sjálfsögðu? Það veltur á líðan og stemningu hverju sinni hvert ég leita og reyndar líka eftir til- gangi. Ég nota ljóð talsvert, t.d. í leiðsögn með Íslendinga. En frá unglingsárum hef ég haldið mjög upp á Tómas Guðmundsson og Stein Steinarr. Ég hreifst af ljóðum þeirra og þau hrífa mig enn. En það gera líka mörg fleiri ljóðskáld. Ég hef t.d. oft leitað í smiðju Hákons Aðalsteinssonar og held líka mikið upp á Vatnsenda-Rósu. Yrkir þú sjálf? Nei, því miður. Ég hef ekki komist upp á lag með það og heldur ekki lagt mig eftir því að neinu gagni. Ég er þokkalegur smiður fyrri parta ferskeytlna en mér lætur síður að botna. Telur þú ástæðu til að auka vægi bragfræðinn- ar í grunnskólum? Ung kona benti mér á að „allt sem stuðlar er satt“. Með þeim rökum er svo sannarlega ástæða til að auka vægi bragfræðinnar. En að öllu gamni slepptu þá er alltaf hægt að gera betur en ég þekki ekki til hvernig þessu er háttað í öðrum grunnskólum. Hér í Foldaskóla kennum við bragfræði í öllum árgöngum ung- lingastigs og þegar nemendur koma í 8. bekk þekkja þeir þegar grunnatriði svo sem rím og hrynjandi. Í nýrri aðalnámskrá grunnskóla segir meðal annars að nemendur eigi að geta notað algeng hugtök í bragfræði í umfjöllun um bundið mál og óbundið, lesið og túlkað ljóð af ýmsum toga og frá ýmsum tímum. Ég reikna fastlega með að á þetta sé lögð áhersla í öllum grunnskólum. Hér í Foldaskóla verjum við líklega um það bil tveimur kennslustund- um á viku, einn þriðja af skólaárinu, í brag- fræði og ljóðavinnu og mér hefur fundist það hæfilegt og skemmtilegt. RIA. Inga Rósa hefur mikinn áhuga á móðurmáls- kennslu og útivist.

x

Stuðlaberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.