Stuðlaberg - 01.06.2014, Side 20

Stuðlaberg - 01.06.2014, Side 20
20 STUÐLABERG 1/2014 Nemendur 8. bekkjar Foldaskóla tóku vel í það þegar ritstjóri Stuðlabergs mætti hjá þeim í tíma og bað þá að yrkja fyrir sig. Tilgangurinn var að vita hvernig brageyrað væri að þroskast í kennslunni hjá Ingu Rósu. Viðfangsefnið var Bósa ríma, verkefni úr bókinni Bögubósa sem á sínum tíma fylgdi Bögubókinni sem vinnuhefti. Bósa ríma er með þeim annmarka að hvert erindi er að- eins tvær línur, þ.e. vísuhelmingur (sbr. ská- letur), og verkefnið felst í því að búa til það sem á vantar. Nemendur fengu að hafa rím- una með sér heim og skiluðu henni daginn eftir. Kveðskapurinn var að vísu misjafn að gæðum enda hagyrðingarnir ekki þjálfaðir en margt var þó laglega gert eins og sjá má hér á eftir. Upp er vakin ástarglóð undir kvöld hjá Bósa. Kristín botnar: Gefur frá sér geðveikt hljóð. Gleðst í hjarta Rósa. Gefur frá sér geðveikt hljóð Nemendur Foldaskóla yrkja rímu Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður stundaði nám í Foldaskóla á árunum 1986- 1991. Þegar hann var í unglingadeildinni var lögð nokkur áhersla á bragfræði og nemendur lærðu að yrkja vísur og gera það rétt. Stuðlaberg fékk að leggja nokkrar spurningar fyrir fréttamanninn nú þegar liðin eru 23 ár frá því að grunnskólanum lauk og hann beðinn að rifja upp kynni sín af stuðlasetningarreglunum. Hvernig eru minningarnar sem vakna þegar rifjuð er upp bragfræðikennslan í Foldaskóla? Þetta voru skemmtilegar kennslustundir. Við fórum yfir söguna og hefðina en aðal- áherslan var á fræðin, stuðla og höfuðstafi, bragarhættina og auðvitað einhvern kveðskap. Manst þú til þess að þið hafið gert vísur af einhverjum tilefnum? Það kemur kannski á óvart að hópur grunnskólanema á mörkum barnsaldurs Vel þess virði að læra bragfræði Rætt við Ingólf Bjarna Sigfússon um reynslu af bragfræðinámi og gelgju hafi stundum hneigst til þess að yrkja frumstæðar neðanbeltisvísur, aulabrandarakvæði og loks frívísur, sem væru án efa heill bálkur væru þær teknar saman (þótt árangurinn, að fá frí í tíma, léti oftast á sér standa). Hvað finnst þér um þessa lífsreynslu þegar þú lítur yfir farin veg löngu seinna? Var það þess virði? Það er ekki nokkur spurning að það var vel þess virði að læra bragfræði. Þarna tókst að tengja saman forna hefð og lifandi mál. Þetta þvingaði unga huga til að hugsa stíft um formið, möguleika og takmörk íslenskunnar og auðgaði klárlega máltilfinningu okkar. Og ekki veitir af. Á öðrum stað í blaðinu er því slegið fram að þjálfun í vísnagerð, samkvæmt hefðinni, þroski öðru fremur hljóðkerfisvitund ungs fólks. Getur þú tekið undir þetta?

x

Stuðlaberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.