Stuðlaberg - 01.06.2014, Side 21

Stuðlaberg - 01.06.2014, Side 21
STUÐLABERG 1/2014 21 Út hann fer á öldurhús ólgar þrá í brjósti. Theodór J. notar krassandi orðfæri: Salka gefur sínum knús; sá er algjör hósti. ........... Bósi strax á barinn gekk bað um vín í glasi. Guðrún Ásta lokar vísunni: Notar góðan, gamlan smekk - gengur um með þrasi. ........... Bósi gladdist vínið við vakti ræðu káta. Ég get einmitt vel ímyndað mér það. Agað form, ákveðin hrynjandi og mögu- leikarnir endalausir ef tekst að ná tökum á bragfræðinni. Manstu einhverja af vísunum sem þið gerðuð? Nei, ég get nú ekki sagt að ég geri það. Aðrir voru mér flinkari og minn kveð- skapur var ekki þess eðlis að ég hafi haldið honum til haga – þótt bragfræðilega hafi allt verið kórrétt! Ritstjóra tókst þó að rifja upp eina af vísunum sem gerðar voru í bekk Ingólfs. Í dagbók fyrir þriðjudaginn 26. 9. 1989 kemur fram að nemendur áttu samkvæmt kennslu- áætlun að gera útdrátt úr Fóstbræðra sögu en áætlunin mun hafa riðlast því að í miðju kafi var ákveðið að byrja að vinna við ljóðabók, segir í dagbókinni (ritstjóri Stuðlabergs, sem var þarna kennari, man þetta ekki gjörla), og svo kom vísan í framhaldi af því: Bráðvel gefin börn við erum, bókum liggjum í. Ljóðabók við líka gerum, – langar samt í frí. Ekki kemur fram hver eða hverjir ortu. Venjan var sú að höfð var samvinna um þessa gerð vísna, enda sameiginlegir hags- munir í veði, og Ingólfur Bjarni var ekki vanur að láta sitt eftir liggja í yrkingunum, án þess þó að hér sé reynt að ráða nánar í hverjir séu höfundarnir. RIA. Mímir B. bætir við: Ekki myndi ég af þeim sið mig endilega státa. ........... Gerðist fær í flestan sjó firrtur öllum vanda. Heiðar finnur lausn á vanda Bósa: Keypti góða gúmmískó gott var þá að standa. ........... Sýpur fast og syngur hátt sorgum öllum rúinn. Júlíu Ó. líst ekki meira en svo á framhaldið: Hiklaust gengur hann þá átt að hamingjan sé búin.

x

Stuðlaberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.