Stuðlaberg - 01.06.2014, Side 23

Stuðlaberg - 01.06.2014, Side 23
STUÐLABERG 1/2014 23 Einbeitir sér að Arinbjarnarkviðu Þorgeir Sigurðsson verkfræðingur innritaði sig nýlega í doktorsnám í bragfræði Hvað er það sem einkum rekur þig til að fara að nema bragfræði? Í íslenskum fræðum er margt sem mér finnst áhugavert en ég held að núna sé sér- staklega vænlegt að rannsaka bragfræði. Það er m.a. vegna þess að nú er starfandi stór og öflugur hópur manna sem hefur áhuga á þessu sviði. Þetta er að miklu leyti að þakka Kristjáni Árnasyni, prófessor. Grein Jónasar Kristjánssonar í Griplu XXVII 2006 er hvatn- ing til manna um að rannsaka bragfræði með tilliti til kenninga um aldur kvæða. Í þeirri grein skrifar Jónas um kvæði Egils og notar bragfræðireglur sem rök. Bragfræðina má nota til að rannsaka breytingar í framburði máls en hún tengist einnig almennum kenn- ingum um eðli máls, t.d. um tengsl ríms, stuðla og atkvæðabyggingar. Um þetta skrif- aði ég í MA-námi mínu grein í Íslenskt mál 23, 2001 sem ég kallaði rímstuðla sem aðrir hafa unnið áfram með, þar á meðal Kristján Árnason, Ragnar Ingi Aðalsteinsson og sonur minn Haukur. Bragfræði er nauðsyn við út- gáfu fornkvæða, m.a. til að taka á vafamálum þegar kvæði eru illa varðveitt. Ég skrifaði BA- ritgerð um Sonatorrek Egils án þess að styðj- ast við neinar bragfræðikenningar sem ég vil bæta fyrir í doktorsritgerð um Arinbjarnar- kviðu. Þú átt að baki langan starfsferil sem verkfræð- ingur. Hvernig hefur sú reynsla nýst þér á þessum nýja vettvangi? Ég hef síðustu 13 árin unnið hjá Geislavörnum ríkisins. Þar áður vann ég við það sem kalla má tungutækni. Ég þróaði frumgerð talgervils sem var byggður á upptökum talaðs máls og ég var í nokkur ár ritari evrópskrar staðlanefndar um ritmál í tölvum. Í rafmagnsverkfræðinni eru margar greinar sem tengjast rannsóknum í málfræði, það á ekki aðeins við um gerð þýðingarvéla og talgreiningarvéla heldur einnig fræðin um hvernig upplýsingar eru skráðar og fara á milli tölva. Grein Fyrsta málfræðingsins um íslenskt stafróf minnir um margt á þau fræði. Hvaða svið bragfræðinnar eru þér einkum hugleikin? Eins og mörgum öðrum finnst mér forni kveðskapurinn áhugaverðastur og hvernig bragreglur hafa þróast með tungumálinu frá fyrstu Íslandsbyggð til nútíma. Í doktors- ritgerð minni um Arinbjarnarkviðu er ég þó fyrst og fremst að leita eftir reglum sem má treysta við að endurgera texta og meta hversu vel eða illa kvæði eru varðveitt. Þorgeir er verkfræðingur hjá Geislavörnum ríkisins.

x

Stuðlaberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.