Stuðlaberg - 01.06.2014, Page 24

Stuðlaberg - 01.06.2014, Page 24
24 STUÐLABERG 1/2014 Og hvernig gengur svo námið? Viðfangsefnið hefur reynst vera gjöfult. Ég ætlaði upphaflega að hafa doktorsritgerð mína um bragreglur sem kalla mætti öruggar í öllum fornum kveðskap en ég ákvað að þrengja það og einbeita mér að einu kvæði, Arinbjarnarkviðu. Kviðuháttur er mjög reglu- legur háttur og ýmislegt er hægt að segja um hann með vissu. Kvæðið er illa varðveitt og mikil þörf á að beita bragfræði við útgáfu þess. Ég átti von á að handritageymd kvæð- isins væri mjög einföld en hún hefur reynst vera flókin og áhugaverð. Ég skrifaði grein um varðveislu Arinbjarnarkviðu í Són 11, 2013 sem ég vísa til um þetta. Nú varði Haukur sonur þinn nýlega doktors- ritgerð í bragfræði, eins og fram kemur annars staðar í blaðinu. Varst það þú sem vaktir áhuga hans á þessu viðfangsefni eða öfugt? Ég hugsa að við Haukur höfum báðir séð að þetta var frjósamur akur. Þú vaktir athygli á síðasta ári fyrir merkilega uppgötvun og árangursríka vinnu við að skýra Arinbjarnarkviðu Egils Skalla-Grímssonar. Eru fleiri slík verk á döfinni? Það var vinna mín hjá Geislavörnum við geislun af margs konar tagi sem varð til þess að ég fór að velta fyrir mér hvort ekki mætti beita sams konar tækni og ég vissi að hafði verið beitt við lestur handrita erlendis. Ég vildi gá hvort eitthvað væri hægt að sjá með ljósi sem ekki sést með berum augum og það reyndist vera á síðunni sem geymir Arin- bjarnarkviðu. Ég hef reynt að einbeita mér að Arinbjarnarkviðu þar sem ég hef fengið úr miklu að moða og ég vona að mönnum eigi eftir að þykja það áhugavert sem á eftir að koma í ljós. Getur þú skýrt í stuttu máli fyrir lesendum í hverju uppgötvun þín við Arinbjarnarkviðu fólst og hvort þessi aðferð geti hugsanlega nýst við fleiri handrit? Íslensk handrit eru sérstaklega dökk sem verður til þess að erfitt er að lesa sum þeirra. Í innrauðu ljósi eru þau einnig dökk en blekið sem skrifað var með er oft ljósara en skinnið og textinn birtist eins og hvítir stafir á svörtum grunni. Þótt ekkert sjáist með berum augum getur komið fram texti sem ekki var vitað um. Þetta er alveg meinlaust fyrir hand- ritin, ekki er notuð önnur birta en kemur frá venjulegri ljósaperu (sýnilega ljósið er síað burt við myndatökur). Ég veit ekki hvort sú einfalda tækni sem ég notaði gagnist við lestur margra handrita en flóknari úrvinnsla á myndum sem teknar eru við margar mis- munandi bylgjulengdir mun örugglega gera það. Ég er að vona að Árnastofnun komi sér í þessu skyni upp búnaði sem er fáanlegur og er nokkuð staðlaður. RIA. Örbylgjukliðurinn Sonnetta um enduróminn af Miklahvelli Hið hljóða suð frá heimsins fyrsta degi, það heyrist ennþá fram um tímans göng en mikið er nú leiðin orðin löng og lengist enn á stefnusviptum vegi því heimur vor er hending ein og reykur, eitt happaglapp í takmarkslausri ró. Vér sperrum eyrun fram á frosinn sjó, hinn forni kliður heyrist, daufur, veikur – – en heyrist samt og það er vert að vita því vargar tímans gleypa sína bráð, jafnt minningar og mannfólk. Hvar er náð? En munum kliðinn, sá er oss til hita því gleði vor og leiði, leikur, iðja er lágvært suð í eyrum vorra niðja. Haukur Þorgeirsson.

x

Stuðlaberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.