Stuðlaberg - 01.06.2014, Qupperneq 26

Stuðlaberg - 01.06.2014, Qupperneq 26
26 STUÐLABERG 1/2014 Halldór Blöndal fyrrverandi ráðherra átti einhverju sinni í orðaskaki við Sigurð A. Magn- ússon sem hafði þá skömmu áður sent frá sér ljóðabókina Skrifað í sandinn. Halldór orti: Lítið glæðist ófrjór andinn er um gæðin lítið spurt. Skástu kvæðin skrifar í sandinn – skola flæði þeim á burt. Það þykir við hæfi að þakka hæversklega fyrir sig þegar tekið er á móti viðurkenningum og slíkt yfirleitt ekki frásagnarvert. En þegar Guðmundur Arnfinnsson tók við þriðju verðlaunum í vísnasamkeppni á vegum Öryrkjabandalagsins stakk hann að dagskrárstjórnandanum eftirminnilegri vísu: Sá sem þriðju verðlaun vann vegsemd fagnar hverri, en dómnefndin sem heiðrar hann, hún er eitthvað verri. Sigurður Óttar Jónsson er þekktur fyrir vel gerðar hringhendur eins og eftirfarandi dæmi sýnir. Vísan ber heitið Fjallskerðing (sbr. orðið fjallaskarð) og með nafngiftinni er vísað í Krókarefs sögu en stakan segir frá eftirminni- legu fjallaklifri: Fyrir löngu í fjallaþröng fyrstu göngu þreytti. Gáfust svöngum gæða föng glaður söng og neytti. Þegar séra Hjálmar Jónsson, dómkirkju- prestur, fór í hjartaþræðingu fyrir nokkrum árum orti Jón Ingvar Jónsson: Hjálmar má þola hremmingu stranga og heilsufarsbresti. Drottinn minn láttu nú dæluna ganga hjá Dómkirkjupresti. Séra Hjálmar fékk svo blóðtappa nú ný- lega og þá orti Jón Ingvar aftur undir sama bragarhætti: Hjálmar er traustur og heiðurskall mesti og hefur það sannað. Drottinn minn taktu nú tappann úr presti og trodd‘onum annað. Afdráttarháttur er afar vandmeðfarinn og erfiður. Margir hafa reynt sig við þetta form en fáir haft erindi sem erfiði. Pétur Stefáns- son gerði eina slíka tilraun og niðurstaðan er fyllilega ásættanleg: Bráðsnjöll ljóðin marga menn mæra, þjarma, hrella. Ráðsnjöll jóðin arga enn, æra, jarma, rella. Og svo er kveðskaparhefðin í miðju kafi farin að heyra undir heilbrigðiskerfið. Fyrr- nefndur Pétur sendi frá sér vísu: Ég heiti Pétur og ég er fíkill Kveð ég ljóðin alveg ær, þó ellimóður kalki. Er og verð ég vinur kær vísnagerðar-alki. Þekkt er sú aðferð til að festa í minninu mikilsverða hluti að setja þá inn í vísu. Kjartan Skástu kvæðin skrifar í sandinn Lausavísnaþáttur

x

Stuðlaberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.