Stuðlaberg - 01.06.2014, Page 31
STUÐLABERG 1/2014 31
Víxlrím eða skiptirím (abab)1, runurím
(aabb) og samrím (aaaa) er algengasta rím-
skipan í fjögurra vísuorða2 brag eða bragein-
ingu.3 Óháð því hver þessara þriggja rímgerða
er notuð þá gildir hin almenna regla um dreif-
ingu ljóðstafa að tveir stuðlar standa á sínum
stað í frumlínum4 og einn höfuðstafur í fyrsta
risi síðlína.
Möguleikar á rími eru þó fleiri. Algengt
er að láta aðeins síðlínur ríma (oaoa) og í
1 Hér er ekki gerður greinarmunur á einrími og tvírími
þannig að ab getur allt eins staðið fyrir AB, Ab eða aB.
2 Hugtökin vísorð og lína eru hér notuð sitt á hvað en eru
þó einnar merkingar bæði.
3 Með brageiningu er t.d. átt við helming átta vísuorða
háttar sem er samansettur úr tveimur fjögura vísuorða
einingum sem hvorki stuðlar né rím binda saman.
4 Nema vísuorðin séu þeim mun lengri eða styttri.
Klofarím
Hvernig er stuðlað með klofarími? Á þrjá vegu.
Hverja? Með víxlstuðlun, vikstuðlun eða rammastuðlun.
gömlum sálmum var tíðkað að skjóta fjórðu
línu undan samrími (aaao) en endurtaka hana
í staðinn í lok hvers erindis. Enn má nefna
stikluvik (aoaa). Engin af þessum sjaldgæfari
rímaðferðum hefur áhrif á dreifingu ljóðstafa.
Hún er jafnan eins og fyrr var lýst.
Enn er ónefnt klofarím (abba) sem svo er
nefnt eftir b-línunum sem kljúfa a-rímið en
hefur einnig verið kallað rammarím eftir a-
línunum sem ramma b-rímið inn. Þá ber svo
við að hægt er að stuðla með þrennum hætti. Í
fyrsta lagi á hefðbundinn hátt. Það mætti kalla
víxlstuðlun:
Þar sem háir hólar
hálfan dalinn fylla,
þar sem hamrahilla
hlær við skini sólar.
(Jónas Hallgrímsson)
Í öðru lagi geta vísuorð með b-rími mynd-
að braglínupar en fyrsta og fjórða lína eru þá
sér um stuðla. Það mætti kalla rammastuðlun.
Þó landahringur bylgjum blám
ey vora í faðmi feli víðum
en fjarri þú hjá vinum blíðum
á móðurjarðar kætist knjám
(Jónas Hallgrímsson)
Hér tekur stuðlunin undir með ríminu;
gerir miðlínurnar tvær að greinilegri bragein-
ingu og leggur um leið áherslu á hlutverk
fyrstu og síðustu línu sem „ramma“.
Í þriðja lagi getur stuðlun verið með hefð-
bundnum hætti framan af erindi þangað til í
síðasta vísuorði sem víkur frá víxlhefðinni og
er sér um stuðla. Það mætti kalla vikstuðlun:
Bjarki Karlsson stundar doktorsnám í ís-
lenskri bragfræði.