Stuðlaberg - 01.06.2014, Side 35
Þann 2. október næstkomandi verður Sigurður Sigurðarson dýralæknir 75 ára. Af
því tilefni kemur út hjá Bókaútgáfunni Hólum seinna bindið af æviminningum
Sigurðar og verður það jafnframt afmælisrit hans. Þar segir hann frá dýralæknis-
námi sínu í Noregi, glöðu stúdentalífi og kynnum af Norðmönnum og Íslend-
ingum. Eftir það tók við lífið sjálft, erilssamt starf sem dýralæknir, yfirdýralæknir
og vísindamaður á tilraunastöð Atvinnudeildar Háskóla Íslands á Keldum. Hann
átti veigamikinn þátt í að halda í skefjum hinni illræmdu riðuveiki og vinna
bug á öðrum búfjársjúkdómum með óbilandi staðfestu sinni og fagmannlegum
vinnubrögðum. Víða voru miklir hagsmunir í húfi en Sigurður hvikaði hvergi. Sitt
sýndist þá hverjum og fyrir kom að dýralækninum var hótað lífláti.
En þessi ævisaga Sigurðar geymir margt fleira. Fyrir utan merkan fróðleik eru þar
ógrynni sagna af skemmtilegu fólki, skemmtilegum viðburðum og fullt af galsa og
kímni og skemmtilegum vísum.
Útgefandi býður hér með vinum Sigurðar og velunnurum, öllum þeim sem vilja
sýna honum sóma, að skrá sig á heillaóskaskrá, Tabula gratulatoria, sem verður
í upphafi bókarinnar og gerast jafnframt áskrifendur að henni. Verð bókarinnar
verður kr. 6.480- og er sendingargjaldið innifalið. Þeir sem vilja þiggja þetta boð
eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Brynjar Baldursson í netfangið
brynjar@holabok.is eða í síma 698-6919.
Bókaútgáfan Hólar
holabok.is / holar@holabok.is
Sigurður dýralæknir 75 ára