Stuðlaberg - 01.04.2022, Blaðsíða 10

Stuðlaberg - 01.04.2022, Blaðsíða 10
10 STUÐLABERG 1/2022 Indriði Aðalsteinsson, bóndi á Skjaldfönn, svarar þessu svona: Ömurleg er iðja sú sem orðin mun að vana. Þjóðin færir fórnir nú fyrir sægreifana. Ingólfur Ómar Ármannsson yrkir hring­ hent: Auðvaldsbófar gefa ei grið, glæfra­ þróa ­siði. Mjög því óar mörgum við Mammonsþjófaliði. Ritstjóri Fréttablaðsins, Sigmundur Ernir Rúnarsson, á tvær þær síðustu: Þjóðin fékk og þjóðin á þjóðarauðlind væna, en aurapúkar út við sjá áfram henni ræna. Þreytuleg er þjóðarsál, það má fráleitt efa, í hnipri segir, sjálfsagt mál; sælla er að gefa. Hagyrðingar fá bestu þakkir fyrir skjót viðbrögð og góðar vísur. RIA. Fjalls úr kima froðugrár Innst í Botnsdal fellur fossinn Glymur fram af suðurbrún Botnsheiðar. Hann er ekki vatnsmikill, en er talinn hæsti foss á landinu (198 m). Gljúfrið, sem hann fellur í, er ógur legt og hafa ekki allir kjark til þess að hætta sér fram á brún, svo að þeir eru fleiri sem hafa heyrt hann en séð. En fossinum liggur hátt rómur og heyrist til hans víðs vegar. Þó verður að gera ráð fyrir því að þeir hafi séð hann sem ortu um hann stökurnar: Við þann himinháa Glym, hver sem skimar lengi, fær í limi sundl og svim sem á Rimum héngi. Sigvaldi Jónsson. Glymur háum gljúfrum frá girtur bláum klettum, þeytir lágar eyrar á iðu gráum skvettum. Pétur Beinteinsson. Straumaglammið stansar hvergi, stælt af rammaseið, Glymur fram af bröttu bergi beina þrammar leið. Glymur snjall af Gínars hjall Gríðar skall um hörginn, kallið gall í klettastall, krafturinn small við björgin. Einar Sigurðsson í Botni. Botns af háu brúnum fláu breytinn þrymur, vatn í bláu fleytir fimur fossinn sá, er heitir Glymur. Sigurður Helgason á Fitjum. Fjalls úr kima froðugrár felldi þunga strauma fossinn Glymur, furðu hár, fram í gilið nauma. Sveinbjörn Beinteinsson. Tíminn Sunnudagsblað, 20. júní 1964. A nd re as T ill e.

x

Stuðlaberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.