Stuðlaberg - 01.04.2022, Side 16
16 STUÐLABERG 1/2022
Barnaútgáfa af dróttkveðu
Rætt við Gunnar Straumland
Gunnar Straumland er fæddur og uppalinn
á Húsavík, af þingeyskum og breiðfirskum
ættum. Myndlistarmaður að mennt og lífs
starfi, auk þess að hafa lært til kennaraprófs
og réttinda til kennslu í grunnskólum og
framhaldsskólum. Meðfram kennslustörfum,
í tæpa tvo áratugi, hefur hann unnið að
myndlist og sett upp sýningar á verkum
sínum. Fyrir tveimur árum gaf bókaútgáfan
Sæmundur út bókina Höfuðstaf með kveðskap
Gunnars og málverkum.
Gunnar var fyrst spurður að því hvenær
hann hefði byrjað að fást við bragfræði
kennslu í grunnskólum:
Allan minn kennsluferil, í tæpa tvo áratugi,
hef ég lagt á það áherslu í íslenskukennslu
minni að nemendur kynnist grunnreglum
bragfræðinnar — ljóðstafahrynjandi sérstak
lega. Undanfarinn áratug hef ég skipulega
komið því þannig fyrir að allir nemendur
mínir hafi kynnst þessum grunnatriðum.
Ég hef lengstum verið umsjónarkennari á
miðstigi, kennt 10–13 ára börnum, og gert
mér far um að vekja áhuga þeirra á að nota
tungumálið á skapandi hátt.
Hvað kom til að þú fórst að kenna nemendum
þínum vísnagerð og bragfræði?
Ég er sannfærður um gildi þess að börnin
kynnist vel háttbundnum kveðskap. Þegar
ég fór að prófa að sýna þeim og kenna
grunnatriði bragfræðinnar komst ég að því,
mér til mikillar ánægju, að allflestir nem
endur sýndu bragfræðikennslunni áhuga og
höfðu greinilega margir gaman af. Auðvitað
misjafnlega, eins og gengur, en það hvatti
mig til þess að halda ótrauður áfram.
Eins og áður hefur komið fram hef ég
lengstum haft umsjónarkennslu á minni
könnu og kennt flestar námsgreinar. Einnig
hef ég tekið að mér myndmenntakennslu.
Ég kynnti fyrir skólastjórnendum í skólanum
mínum, Varmárskóla í Mosfellsbæ, hug
myndir mínar um listgreinaáfangann ,,Orð
og mynd“, þar sem áherslan yrði á skapandi
vinnu í skrifum og myndgerð. Það var mjög
vel tekið í það og þennan áfanga hef ég haft
í gangi í vetur fyrir 2.–6. bekk. Með yngri
börnunum hef ég lesið kvæði, t.d. eftir Þórarin
Eldjárn. Þau hafa myndlýst og skrifað texta,
innblásinn af myndunum.
Ég hef, hins vegar, unnið skipulega að
bragfræðinni með eldri krökkunum, 5. og
6. bekk. Auk þess að lesa ljóð og greina
innihald, ljóðstafi og rím, hafa nemendur
alltaf myndgert kvæðin líka.
Gunnar Straumland og Tígri.