Stuðlaberg - 01.04.2022, Qupperneq 20
20 STUÐLABERG 1/2022
Unnendur vísna og kvæða meta þau
einkum út frá því hversu vel eða illa tekst til
við að sníða meinta hugsun inn í fastmótað
form sem hægt er að skilja. Ljóð í frjálsu
formi verka hins vegar illa á marga, þau eru
óregluleg og þótt hvert orð sé skiljanlegt þá
getur orð valdið áhyggjum og kvíða vegna
þess að aldrei kemur neitt sem rímar við það.
Form sem við þekkjum veitir öryggi og það
get ég vel skilið en ég á samt frekar erfitt með
að skilja fólk sem hengir sig í eina tegund af
einhverju, kýs alltaf sama stjórnmálaflokkinn,
hrífst bara af einni tegund af skáldskap eða
heldur alltaf með sama liðinu. Mér líkar við
fjölbreytni.
Þú hefur ort ljóð sem kallast á við flokk Jónasar
Hallgrímssonar, Annes og eyjar. Viltu segja okkur
eitthvað frá þessum ljóðum og hugmyndinni á bak
við þau?
Ég kalla þennan flokk Eyjar og annes, með
undirtitlinum Jónas á tímum loftslags breyt
inga en hugmynd að flokknum fæddist fyrir
nokkrum árum þegar ég las bók um þýska
náttúrufræðinginn Alexander von Humboldt
sem er stundum sagður vera fyrsti nútíma
náttúrufræðingurinn. Það var hann sem
áttaði sig á því að náttúrufyrirbæri væru ekki
einangruð og án tengsla við umhverfið, heldur
væri allt einhvern veginn samofið og jafnvel
andrúmsloftið væri hluti af lífrænni heild.
Við lestur bókarinnar fór ég að velta því fyrir
mér hvernig Jónas hefði ort sín kvæði ef hann
hefði haft veður af kenningum Humboldts
— og í framhaldinu, hvernig Jónas hefði ort
Annes og eyjar nú á tímum loftslagsbreytinga.
Þetta er auðvitað fáránlegur þankagangur og
það er ekki góður siður að ætla öðru fólki,
lifandi eða látnu, sínar eigin skoðanir en í
þessu tilviki langaði mig til að vita hvað væri
mikið líf í Jónasi og hvort hann gæti veitt
mér innblástur líkt og hann gerði að vissu
leyti þegar ég var yngri. Þá setti ég saman
ljóðaflokk sem ég kallaði Farsælda frón og fór
í hringferð um landið. Þetta voru fjórtán ljóð,
fjórtán línur hvert og áttu að vera eins konar
Limrur eftir Anton Helga
Óvæntur koss og eftirleikur
Í dinnernum Kata mig kyssti,
mér krossbrá og andlitið missti
ég niður í gólf
en náði um tólf
að nudda því á mig og gisti.
Lítilsvirt prentvilla öðlast hlutdeild í
eilífðinni
Þótt lesendum geri ég gramt
í geði skal stoltið mér tamt
og víst telst ég skaði
sem villa í blaði
en villa í Mogganum samt.
Stundakennari í hagfræði ályktar um úthald
og aflabrögð
Þeir liðtæku hlutinn sinn hljóta
og hlunninda ágætra njóta.
Við færið er glatt,
hið fornkveðna satt:
Þeir fiska sem róa með kvóta.
Sumar á landinu bláa
Sjá; lúpínan blánar við brún
því bærilegt samband á hún
við gróðursins höfund
en grænir af öfund
hér gerast nú dalir og tún.
Hulda mín leysir af sem birgðastjóri hjá
Kaupfélagi Patreksfjarðar
Að hagræða hlutum er brýnt;
ég hef á þeim skipulag fínt.
Á lagernum tóma
er lífið til sóma
og leitun að því sem er týnt.
Blendin fagnaðarlæti
Þegar ég rímurnar rappaði
með rytmanum salurinn stappaði
og barfólkið kátt
það blístraði hátt
en bara sá einhenti klappaði.