Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 19.06.2023, Page 4
4 Framkvæmdafréttir nr. 725
3. tbl. 31. árg.
Vel sótt brúarráðstefna
Mikill áhugi var fyrir brúarráðstefnu
Vegagerðarinnar, Byggjum brýr, sem haldin var
fimmtudaginn 26. apríl síðastliðinn. Um 130
manns sóttu ráðstefnuna sem haldin var á Hótel
Reykjavík Grand. Góður rómur var gerður að
erindunum, enda bæði fróðleg og skemmtileg
þar sem litið var bæði til fortíðar og framtíðar í
brúargerð á Íslandi.
Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, bauð
gesti ráðstefnunnar velkomna. Þá ávarpaði Sigurður
Ingi Jóhannsson innviðaráðherra ráðstefnugesti.
Hann sagði meðal annars mikilvægt að víkka
fjárhagsrammann þegar kemur að endurnýjun
og viðhaldi brúa. Því sé nauðsynlegt að hækka
fjárfestingastigið hjá hinu opinbera.
Ráðstefnan hófst á sögulegum nótum. Guðrún
Þóra Garðarsdóttir, brúarhönnuður á hönnunardeild
Vegagerðarinnar, flutti erindið Brýr fyrr og nú, þar sem
hún fór stuttlega yfir brúarsögu landsins og sagði frá
nokkrum sögulegum brúm sem Vegagerðin hefur gert
upp af miklum myndarskap.
↑
Gestir ráðstefnunnar voru
sáttir í dagskrárlok enda
margs vísari um brýr og allt
þeim tengdum.