Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 19.06.2023, Side 16
16 Framkvæmdafréttir nr. 725
3. tbl. 31. árg.
Vegagerðin og ÍAV hafa skrifað undir verksamning um
tvöföldun Reykjanesbrautar (41) milli Krýsuvíkurvegar
og Hvassahrauns ásamt aðliggjandi hliðarvegum.
Tilboð voru opnuð 5. apríl en ÍAV bauð tæpa fjóra
milljarða króna í verkið sem var talsvert undir
áætluðum verktakakostnaði.
Útboðið heitir; Reykjanesbraut (41),
Krýsuvíkurvegur – Hvassahraun. Í því felst
lagning Reykjanesbrautar á um 5,6 km kafla og
inni í verkinu er einnig bygging brúarmannvirkja
og undirganga fyrir akandi, gangandi og hjólandi.
Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar,
Hafnarfjarðarbæjar, HS Veitna, Mílu, Orkufjarskipta,
Ljósleiðarans, Carbfix og Veitna.
Á Reykjanesbraut verða gerð mislæg gatnamót
við Rauðamel en þar er að finna nýtt framtíðar
byggingarsvæði Hafnarfjarðar. Mislæg gatnamót við
Straumsvík verða stækkuð og bætt við tengingu að
iðnaðarsvæði Hafnarfjarðar við Álhellu. Einnig verða
gerðir eftirlitsstaðir við Reykjanesbraut og stofnstígur
fyrir gangandi og hjólandi milli Hraunavíkur og Straums
ásamt tengingu við Straumsvík.
Skrifað undir verksamning um
breikkun Reykjanesbrautar
Verktakinn mun hefja undirbúning fljótlega en
framkvæmdir hefjast af krafti síðsumars 2023.
Stefnt er að því að verkinu verði að fullu lokið í lok
júní 2026.
↑
Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri
Vegagerðarinnar, og Þóroddur Ottesen
Arnarson, forstjóri ÍAV, skrifuðu undir
verksamning í húsnæði Vegagerðarinnar í
Garðabæ, 17. maí 2023.