Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 19.06.2023, Síða 21
Framkvæmdafréttir nr. 725
3. tbl. 31. árg.
21
Nýr og stærri borvagn
Til stendur að festa kaup á nýjum og stærri alhliða
borvagni sem nær dýpra en borvagninn sem nú
er í notkun hjá Vegagerðinni. „Gamli borinn er
jarðtæknibor og hann verður áfram í notkun í ýmsum
verkefnum. Nýi borinn verður notaður þar sem bora
þarf dýpra og þar sem taka þarf kjarnasýni en þörfin
á kjarnaborunum hefur aukist töluvert,“ segir Birkir en
með kjarnaborunum er hægt að meta berggæði.
Kortasjá með margþættum
upplýsingum
Undanfarið hefur staðið yfir vinna við að koma
upplýsingum úr veggreini, falllóði o.fl. í eina kortasjá og
fá þannig ástandsmælingu á vegum landsins. „Mikið
af upplýsingunum sem við erum að safna saman hafa
verið til annars staðar, til dæmis í öðrum kortsjám. Nú
erum við að sameina þetta á einum stað,“ segir Birkir.
Á kortasjánni má til dæmis sjá breidd vega sem hafa
verið mældar með veggreininum, hátæknimælibíl
Vegagerðarinnar. Kortasjáin er enn í þróun en stefnan
er að hægt verði að velja mismunandi þekjur með
ólíkum upplýsingum og para þá saman sem dæmi burð
í vegi, breidd vegar og ástand slitlags.
Uppsöfnuð viðhaldsþörf er á vegum á
Íslandi. Birkir telur að með góðum tækjabúnaði og
upplýsingaöflun verði hægt að greina hvar skóinn
kreppi helst og hvar þurfi að grípa til aðgerða strax og
spara þannig fjármuni með markvissari aðgerðum.
„Öll þessi tækjakaup miða að því að safna
gögnum svo hægt sé að taka ákvarðanir um
uppbyggingu og viðhald vega sem byggðar eru á betri
þekkingu og upplýsingum. Þannig getum við hannað
hlutina rétt, erum hvorki að vanhanna eða ofhanna.
Þannig fáum við bestu gæðin án þess að framkvæmdir
verði dýrari en þær þurfa að vera.“
↘
Til stendur að kaupa nýjan og stærri
alhliða borvagn sem getur borað dýpra
og tekið kjarnasýni.
↓
Nýr buggy-bíll mun nýtast við til að
þjónusta borvagn Vegagerðarinnar.