Úrval - 01.12.1975, Side 72
70
ÚRVAL
„Pakka þér fyrir Jim. Ég hlakka
til.“
Pegar hann var farinn sneri mamma
sér að pabba: „Frank,“ sagði hún og
leit stolt á hann, „þú varst dásamleg-
ur.“
„Nóg um það,“ ansaði pabbi og
tónninn í rödd hans gaf til kynna, að
það væri ekki orða vert. „Pað er bara
kurteisi að láta öðrum líða vel.“
☆
HVÍTABJARNARPRÍBURAR.
Hvítabirna í dýragarðinum í Karkov hefur eignast þríbura í annað
sinn. Birnan hefur á þeim 10 árum, sem hún hefur verið í dýragarðinum,
eignast alls 10 unga, en það er mjög óvanalegt að hvítabirnir eigniist'
unga í dýragörðum.
APN.
LÍTILL HJARTALÍNURITI.
Verkfræðingar í Leningrad hafa ásamt vísindamönnum herlæknisfræði-
akademíunnar búið til lítið rafeindatæki til að taka hjartalínurit. Nefnist
það „foton“ og vegur aðeins 1 kg. Pað léttasta til þessa var 4 kg. Petta
nýja tæki gjerir læknum það kleift að hafa tæki til hjartarannsókna með
sér í læknatöskunni.
APN.
RAFKNÚNIR BÍLAR A FÆRIBANDI.
Verksmiðja í Riga hefur hafið fjöldaframleiðslu á tækjum í rafknúna
bíla. Mun verksmiðjan framleiða vélina, stýrisbúnaðinn og rafhlöðurnar.
Er vélin knúin 22 kílówata jafnstraumi.
í nýja rafmagnsbílnum eru aðeins tvö fótstig, hraðafótstig og fóthem-
ill. í bílnum er hvorki kúpling né gírar, og þess vegna verður mun auð-
veldara að aka bílnum heldur en bensínknúnum bíl. Ekur bíllinn jafnt
og hljóðlaust og er hámarkshraði 60 km á klukkustund.
Pessi nýja bílategund er ætluð til vöruflutninga innan borgarmark-
anna, en þegar hinar öflugu rafhlöður eru orðnar fullkomnari má einnig
nota hann til lengri ferðalaga.
APN.
Orðrómur er nokkuð, sem þykknar eftir því sem breitt er úr því.
M.H.W,