Goðasteinn - 01.09.1964, Page 29
námsskrárnefnd fyrir barna- og gagnfræðastigið og hefur mætt
sem fyrirlesari og fulltrúi fslands á skólamótum á Norðurlöndum
og gegnt fjölmörgum öðrum trúnaðarstörfum. Hefur ritað fjöl
margar greinir í blöð og tímarit hérlendis og erlendis, einkum um
skóla- og menningarmál. Flutti um 200 erindi um ísland á veg-
um Norræna félagsins í Svíþjóð. Eftir hann eru bækurnar Is-
lándska drákttraditioner, Stokkh. 1949, Islándskt byggnadskick,
fjölr., Stokkh. 1951, Félagsfræði, Rvík 1962.
Magnús er kvæntur Brittu, f. 22. jan. 1923, frá Bollnás í Svíþjóð
og eiga þau átta börn.
Britta er lærð söngkona og var stundakennari við Skógaskóla
1949-54 í söng og tónfræði.
Jón R. Hjálmarsson, f. 28. marz 1922, frá Bakkakoti, Vestur-
dal í Skagafjarðarsýslu.
Hann hóf nám í bændaskólanum á Hólum og lauk þar prófi
1942. Tók gagnfræðapróf utanskóla við Menntaskólann á Akur-
eyri 1945. Lauk stúdentsprófi við M. A. 1948. Stundaði nám við
Háskólann í Osló 1948-54. Lauk prófi í forspjallsvísindum 1949.
Cand. mag. prófi í sögu, ensku og þýzku 1952. Lauk prófi í upp-
eldis- og kennslufræðum við Háskóla íslands 1953 og cand. philol.
prófi við Háskólann í Osló í sagnfræði 1954.
Hann kenndi í stundakennslu á námsárum í Oslo og Reykjavík.
Var ráðinn skólastjóri Skógaskóla 1954 og hefur gegnt því starfi
síðan. Formaður Islendingafélagsins í Osló 1953-54, formaður á-
fengisvarnanefndar Austur-Eyjafjallahrepps frá 1954, formaður
byggðasafnsnefndar frá 1955, á sæti í stjórn skólastjórafélags hér-
aðsskólanna og félags skólastjóra gagnfræðastigsins. Hefur ritað
margar greinir í blöð og tímarit hérlendis og erlendis og samið
bækurnar: Atburðir og ártöl, Rvík 1957, Mannkynssaga handa
framhaldsskólum, Rvík 1961, Mannkynssaga 2. hefti, Rvík 1962,
önnur útgáfa af Mannkynssögu 1. og 2. h., Rvík 1963. Hefur flutt
mörg útvarpserindi, einkum um sagnfræðileg efni.
Jón er kvæntur Guðrúnu Hjörleifsdóttur, f. 10. apríl 1927, frá
Reykjavík, og eiga þau fjögur börn. Guðrún stundaði nám við
húsmæðraskólann á Riisby í Noregi 1949 og við Statens kvinne-
Goðasteinn
-V