Goðasteinn - 01.09.1964, Page 30
lige industriskole í Oslo 1953-54. Hún hefur kennt í stundakennsiu
við Skógaskóla handavinnu stúlkna 1954-55, handavinnu stúlkna
og vélritun 1958-59 og vélritun frá 1962.
Albert Jóhannsson, f. 25. sept. 1926, frá Teigi í Fljótshlíð.
Hann stundaði nám i Héraðsskólanum að Laugarvatni og lauk
þar gagnfræðaprófi 1946. Fór síðan í Kennaraskóla Islands og lauk
kennaraprófi 1948. Dvaldist á námskeiði fyrir kennara í lýðhá-
skólanum í Askov í Danmörku sumarið 1949. Veturinn 1952-53
stundaði hann nám við Kennaraháskólann í Kaupmannahöfn og
lagði stund á dönsku, sáiarfræði og kennslufræði.
Hann hóf kennslu við barnaskólann í Laugardal 1948-49 og
réðst kennari að Skógaskóla haustið 1949 og hefur starfað hér
síðan, nema árið 1952-53, er hann var í orlofi erlendis. Aðal-
kennslugrein hans hefur verið danska, en auk þess hefur hann
kennt teikningu, heilsufræði, dýrafræði, skrift og fleira.
Hann er áhugamaður um hestamennsku og á sæti í stjórn
Landssambands íslenzkra hestamanna. Hefur ritað greinir í blöð
og tímarit.
Albert er kvæntur Erlu Þorbergsdóttur frá Hraunbæ í Álftaveri,
og eiga^þau fjögur börn.
Snorri Jónsson, f. 2. marz 1925, frá Siglufirði.
Hann hóf nám í héraðsskólanum að Reykholti og lauk þar
gagnfræðaprófi 1946. Fór síðan í Iþróttakennaraskólann að Laug-
arvatni og lauk íþróttakennaraprófi 1947. Stundaði nám við
Handíðaskólann í Reykjavík og lauk handavinnukennaraprófi 1949.
Hefur síðan verið á nokkrum íþróttanámskeiðum og námskeiðum
fyrir handavinnukennara á Laugarvatni og Reykjavík.
Hann var starfsmaður í Reykjavík við íþróttaskóla Jóns Þor-
steinssonar 1947-48 og kenndi við Alþýðuskólann á Eiðum 1949-
50. Réðst kennari að Skógaskóla haustið 1950 og hefur starfað hér
samfleytt síðan. Aðalkennslugreinar hans hafa verið leikfimi-
sund og aðrar íþróttir og verknám pilta. Hefur um langt árabil
veitt forstöðu sundnámskeiðum á vorin fyrir unglinga úr Vestur-
Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu.
28
Goðasteinn