Úrval - 01.12.1978, Page 33
31
almenna vinnumiðlun í landinu
skotið sér undan hlutverkinu enda
þótt iagaákvæði hafi verið til í um 20
ár sem leggur henni þá skyldu á
herðar að vera til þjónustu í þessum
efnum. Og meir en það. Lögin mæla
svo fyrir að vinnumiðlunin annist það
hlutverk að búa öryrkja undir vinnu
sem hæfirþeim. Þessi ákvæði laganna
hafa aldrei verið framkvæmd. Nú
hefur Reykjavíkurborg á prjónunum
að opna sérstaka deild ráðningarskrif-
stofu sinnar sem á að sinna vinnu-
útvegun til handa þeim sem mæta
hindrun á almennum vinnumarkaði
vegna afleiðina sjúkdóma eða slysa.
Líklegt er að atvinnuþjónusta
skrifstofu endurhæfingarráðs haldi þó
áfram, meðal annars til að sinna
verkefnum utan Reykjavlkurborgar,
en einnig til að annast sérstök vand-
meðfarin tilfelli. Þar er og verður
áfram í notkun prófunarkerfi til að
geta komist nær um ýmis hæfnisatriði
með hliðsjón af vinnumöguleikum.
Og ennfremur eru áfram möguleikar
á raunhæfum vinnuprófunum að
Reykjalundi eins og verið hefur
undanfarin ár.
Hvernig er hægt að aðstoða þá sem
ekki eru taldir færir á almennum
vinnumarkaði? Þeim ætti að standa
til boða að fá vinnu á svonefndum
vernduðum vinnustöðum. Slíkir
vinnustaðir em þó fáir og smáir hér á
landi og sinna hvergi nærri eftir-
spurn. Sennilega em hér á landi um
það bil 60 slík vinnupláss, þegar allt
er talið, nærri öll í Reykjavík, fáein á
Akureyri. Vernduð er sú vinna kölluð
sem sniðin er sérlega að líkamlegum
og andlegum annmörkum manna og
jafnframt er tekið tillit til þeirra þegar
afköst em metin. Slíkur vinnurekstur
er því aldrei arðbær í venjulegri
merkingu, stendur undir sér þegar
best lætur, en getur hvorki fjár-
magnað viðbætur né endurnýjun
búnaðar, eins og vélakost. Hvorki ríki
né seitarfélög hafa sinnt þeirri nausyn
að koma upp verndaðri vinnu, en
nokkur áhugamannafélög hafa gert
það af litlum efnum. Er það hugsan-
lega verkefni fyrir Gigtarfélag íslands
að koma upp vernduðum vinnustað
fyrir skjólstæðinga sína og sjá um
rekstur hans? Samkvæmt lögum er
hægt að fá styrk og lán með góðum
kjömm sem nema samanlagt 80% af
stofnkostnaði slíkrar vinnustofu.
Samkvæmt sömu lögum er heimilt að
greiða tvo þriðjuhluta rekstrarhalla af
opinberu fé. Af þessu má sjá að
löggjafinn hefur séð fyrir myndar-
legum hvata til uppsetningar slíkra
vendaðra vinnustaða. Lögin em frá
1970, en þó hefur aðeins einn aðili
stofnað til nýrrar vinnustöðu síðan.
Annarri verndaðri vinnuaðstöðu sem
tii er var komið á iggirnar fyrir 1970.
Félagsleg vandamál: Segja má að
þau tvö atriði sem rakin hafa verið,
nám og atvinna, séu vandamál félags-
legs eðlis. Félagsleg vandamál gigtar-
sjúklinga em fleiri og tengd hverju
öðm eins og oft er um slíka
vandamál. Tengd atvinnuvanda-