Úrval - 01.12.1978, Page 50

Úrval - 01.12.1978, Page 50
48 öðru og buðu upp á hlýju eftir veruna í snjónum úti. Hús frú Ainsworth var ríkulega skreytt smáljósum og jólagreinum, og lokkandi ilmurinn af kalkún með hrísgrjóna og laukfyllingum barst framan úr eldhúsi. En augu hennar voru full þjáningar, þegar hún leiddi mig til stofu. Debbí lá hreyfingarlaus á hliðinni, og þétt upp við hana lá agnarlítill, kolsvartur kettlingur. ,,Hún hefur ekki komið í margar vikur,” sagði frú Ainsworth. ,,Svo kom hún fyrir um tveimur tímum. Hún skjögraði inn og bar kettlinginn í kjaftinum. Hún lagði hann á mottuna, og fyrst var mér skemmt. En svo sá ég að eitthvað var að. ” Ég kraup hjá köttunum og strauk Debbie um háls og brjóst. Hún var horaðri en nokkru sinni fyrr, feldur- inn óhreinn og austokkinn. Þegar ég leit í augu hennar og sá dauðafölvann á lithimnunni, vissi ég hvað klukkan sló. Ég þuklaði kviðinn og fékk grimmilega fullvissu, þegar ég fann harðan hnút meðal innýflanna. Lymfuæxli á háu stigi. Banvænt og vonlaust. ,,Hún er að deyja,” sagði ég. „Hún er fallin í dá — komin yfir allar kvalir.” ,,0, veslingurinn litli!” Frú Ainsworth brast í grát og strauk kisu hvað eftir annað um kollinn, meðan tárin féllu hömlulaust niður á aurugan feldinn. „MikiÓ hlýtur hún ÚRVAL að hafa þjáðst! Ég hefði átt að gera meira fyrir hana. ” Ég var þögull um stund, og fann sorg hennar seitla til mín. Svo sagði ég lágt: „Enginn hefði getað gert meira en þú gerðir. ’ ’ ,,En ég hefði getað haft hana hér — og látið fara vel um bana. Það hlýtur að hafa verið hræðilegt þarna úti í kuldanum, og hún svona þjáð! Og með kettlinga líka — hve marga skyldi hún hafa eignast?” Ég yppti öxlum. ,,Það fáum við sjálfsagt aldrei að vita. Kannski bara þennan eina. Það kemur fyrir. Og hún færði þér hann. ’ ’ ,Já, það gerði hún.” Og frú Ainsworth rétti fram höndina og lyfti litla, svarta hnoðranum. Lítill bleikur munnur opnaðist og vesældarlegt mjálm heyrðist. ,,Er þetta ekki skrýtið? Hún var að dauða komin og hún færði mér kettlinginn sinn. Og það á jóladag. ’ ’ Ég lagði höndina á brjóst Debbíar. Þar var enginn hjartsláttur. Ég vafði dulu um hræið og fór með það út í bíl. Þegar ég kom aftur var frú Ainsworth enn með kettlinginn í höndunum og tárin höfðu þornað. ,,Ég hef aldrei átt kött áður,” sagði hún. Ég brosti. ,,Mér sýnist þú hafa eignast kött núna, ’ ’ sagði ég. KETTLINGURINN ÖX HRATT og varð að rennilegum og fallegum ketti, fyrirferðarmiklum að eðlisfari, svo þar af spratt nafn hans, Bylur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.