Skaginn


Skaginn - 01.12.1944, Blaðsíða 3

Skaginn - 01.12.1944, Blaðsíða 3
Fylgt úr hlaði Skólinn okkar er ungur, þetta er ann- að árið, sem hann starfar, öll félagsstarf- semi skólans er því á byrjunarstigi. — Nemendafélag hefur verið starfandi innan skólans frá því í fyrrahaust. Fé- lagsáhugi nemenda er mikill, og á fund- um okkar koma fram mörg mál og merkileg, minnsta kosti finnst okkur það. Eitt af áhugamálum félagsins er að gefa út skólablað, og hér hefur blaðið göngu sína. Við höfum valið blaðinu nafnið „Skag- inn“. Staðurinn okkar er í daglegu tali nefndur „Skaginn“. Á skaganum eigum við flest öll heima. Hér höfum við verið hjá pabba og mömmu. Hér höfum við gengið í barnaskóla. Hér höfum við leikið okkar æskuleiki og framið okkar bernskubrek. Hér höf- um við glaðzt og hér höfum við hryggzt, og nú göngum við hér í gagnfræðaskóla. Hvort sem við dveljum hér framvegis, eða hvar sem leiðir okkar liggja, þá mun „Skaginn“ okkar alltaf verða tengdur hlýjum hugsunum. Þegar við nú í fyrsta sinn komum opinberlega fram, þá viljum við minn- ast „Skagans“ okkar. Því heitir blaðið „Skaginn“. Staðnum er ef til vill enginn sérstak- ur heiður sýndur með því að kenna blað- ið við hann, en öll munum við leitast við að auka sóma og gengi „Skagans“ okkar eftir því, sem við höfum vit og getu til. Þess er ekki að vænta, að fyrsta blað- ið verði gallalaust, því öll byrjun er erfið, það er betra að bæta og laga, þeg- ar búið er að skapa einhverja fyrir- mynd, heldur en að skapa fullkomið í fyrsta sinn. Auk þess eru höfundarnir að sögum og greinum blaðsins hvorki gamlir né reyndir í ritmennskunni. Ef til vill eiga lesendur eftir að sjá merkari greinar eftir þá höfunda síðar. Landið okkar er fagurt land. Það á fjölda af fögrum og merkum stöðum, sem unaður og uppbygging er að skoða og heyra um. Flestir skólar leitast því við að fara með nemendur sína í ferða- lag, til þess að skólafólkið geti kynnzt landinu sínu og glaðzt yfir því að eiga svona fagurt land fyrir föðurland. Ef vel heppnast með útgáfu og sölu blaðsins, höfum við von um að geta á þennan hátt náð okkur í nokkrar krónur, sem við munum verja til skólaferðalags í vor. í öðru lagi höfum við gaman og gagn af að reyna að semja greinar, sem eiga að koma út í blaði, þótt blaðið verði hvorki víðlesið né víðfrægt. Að lokum viljum við þakka starfs- mönnum prentsmiðjunnar hér fyrir hjálpsemi þeirra við blaðið. Og öllum þeim, sem hafa auglýst í blaðinu, viljum við þakka fyrir styrk þann, er þeir hafa veitt blaðinu, með auglýsingunum. SKAGINN 3

x

Skaginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skaginn
https://timarit.is/publication/1913

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.