Skaginn


Skaginn - 01.12.1944, Blaðsíða 9

Skaginn - 01.12.1944, Blaðsíða 9
og snéru báðir út að sömu götunni. Við héldum niðri í okkur andanum á meðan krakkarnir týndust út, en sum lágu á hurðinni og hlustuðu eftir, hvort nokk- uð hljóð heyrðist frá kennurunum. En áður en við yfirgáfum herbergin, læst- um við þeim. Síðan lagði hópurinn af stað. Það var eins og við ætluðum að hertaka allan ísafjörð. Á dansleikinn komumst við, og var nú heldur en ekki glatt á hjalla. Klukkan tvö var dansleiknum lokið, og vorum við hálft í hvoru fegin, því að hugsunin um að allt kæmist upp, var alltaf að ásækja okkur. En samt skemmt- um við okkur hið bezta. Þá kom nú að því að skríða inn um gluggana aftur, og gekk það allt slysalaust, þangað til röð- in kom að síðasta stráknum, sem var fremur feitlaginn. Hann komst að vísu hálfur inn um gluggann, en þá steypt- ist hann á höfuðið niður á gólf; var aumingja strákurinn með glóðar auga í öllu ferðalaginu. Við þessa byltu varð mikill hávaði. Strákarnir flýttu sér sem mest þeir máttu, en mundu samt eftir að hafa ekki hátt. Við háttuðum í skyndi, og þótt- umst allar vera sofandi. En allt í einu er hurðin opnuð, og skólastjórinn stóð ljóslifandi í dyrunum. Hjartað barðist ákaft í brjóstum okkar. Nú er úti um okkur. Ég fór að hugsa til guðs, og bað hann að hjálpa okkur. „Er nokkuð að ykkur?“ spurði skóla- stjórinn vingjarnlega. Síðan bætti hann við: „Mér heyrðist ég heyra einhvern hávaða, og þess vegna hélt ég að eitt- hvað væri að, en það getur hafa verið úti.“ Þegar hann hafði þetta mælt, fór hann út. Guði sé lof, hugsaði ég; hann veit þá ekkert. Síðan lögðumst við allar til svefns, stóránægðar með sjálfar okkur. Morguninn eftir var haldið inn á Reykjanes. Frá Reykjanesi fórum við út í Ögur, og gistum þar um nóttina. Daginn eftir héldum við aftur til ísa- fjarðar. Nú áttum við að fara inn 1 Tungu- skóg. Þar heimsóttum við Simson og skoðuðum garðinn hans. Þar er stór myndastytta, sem hann sjálfur hefur búið til, og er hún ákaflega falleg. Þá eru og einnig há tré, gosbrunnar og vermireitir, og alls konar blóm. Veðrið var dásamlegt. Loftið var þrungið fugla- söng og blómailm. Sólin skein og sendi hlýja og bjarta geisla sína til okkar, og himinninn var heiður og blár. Þarna var nóg af berjum. Við tíndum eins mikið og við gátum, og borðuðum á leiðinni til Súgandafjarðar. Við sung- um nokkur lög, en héldum síðan af stað til Súgandafjarðar. Þegar við komum þangað, þá var þar stúkuþing. Við fór- um á það, enda vorum við öll í stúku, og auðvitað hinir mestu templarar. Eft- ir þingið var stiginn dans. Ekki gátum við nú varizt hlátri, þegar skólastjórinn segir: „Það fór þá aldrei svo, að þið fengjuð ekki að dansa, þó þið færuð ekki á þetta „skrall“ á ísafirði.“ Klukkan níu að kvöldi komum við niður í Önundarfjörð. Kvöldsólin var að hníga til viðar, og kastaði gullroðn- um geislum sínum út yfir ströndina. — Þegar heim kom, mátti ég ekki vera að því að segja frá ferðalaginu, enda var ég orðin svo þreytt; en ég fór að sofa. Brátt sveif ég inn í draumalandið. S. J. Gott og farsælt nýtt ár! SKAGINN 9

x

Skaginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skaginn
https://timarit.is/publication/1913

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.