Skaginn


Skaginn - 01.12.1944, Blaðsíða 14

Skaginn - 01.12.1944, Blaðsíða 14
ið af sér að stela, vegna jólanna og litla barnsins í jötunni. En nú datt henni nokkuð í hug: Hafði hú ekki einhvern- tíma heyrt um, að það væri hægt að biðja jólabarnið bæna, og maður fengi það, sem beðið væri um. En hvar hafði hún heyrt þetta? Jú, nú mundi hún það, það var í einhverju stóru húsi með turni, sem var kallað kirkja, og það var einmitt á jólunum, það mundi hún. Og hún mundi líka, að hún hafði verið með góðri konu, sem hún kallaði mömmu. En svo hafði mamma hennar dáið, og þá hafði þessi andstyggilega stjúpa tekið hana að sér. Nú ákvað hún að finna kirkjuna, og hún var ekki búin að ganga lengi, þeg- ar hún fann hana. Það stóð einmitt svo á, að það var verið að syngja aftansöng. Hún gekk inn í anddyrið. Þar var eng- inn maður. Ætti hún að þora lengra? Hún fikraði sig hægt og hikandi að dyr- unum, tók í húninn og opnaði hurðina, en það lét svo hátt í henni, að henni fannst. Fólkið leit til dyra. Það varð undrandi, þegar það sá Klöru, þessa litlu, átta ára telpu, sem var svona illa út lít- andi, tötrarnir héngu utan á henni, og hún var blá af kulda. Hún fékk sér sæti á aftasta bekk. Og nú hlustaði hún á sömu sálmana, sem sungnir höfðu ver- ið, þegar hún var með mömmu sinni. En Klara litla hafði verið svo þreytt, að áður en varði var hún sofnuð. Hana dreymdi, að hún væri hjá mömmu sinni, og hún var að segja henni sögu af litla jólabarninu, sem var lagt í jötuna. En hvað var þetta, sá hún ekki þarna jólabarnið. Jú, það var veruleiki. Og Klara settist upp og leit í kringum sig. Hvað er þetta? Hvar er ég, og hvers vegna er ég hér? Hún lá í drifhvítu rúmi, og á móti henni blasti við mynd af jólabarninu. Nú kom til hennar kona, blíðleg á svip, hún klappaði á ljósa kollinn hennar og sagði: „Hvernig líður þér núna, litla vina mín?“ Klara varð undrandi yfir þessum blíðuatlotum frá ókunnugri konu, og Klara spurði hana, hvers vegna hún væri þarna, og konan svaraði henni því, að hún hefði fundið hana sofandi í kirkj- unni, og af því að hún ætti enga litla stúlku, hefði hún tekið hana heim með sér. Nú spurði hún Klöru, hvort hún vildi ekki vera dóttir sín. „Ætlar þú þá að vera mamma mín?“ hrópaði Klara himinlifandi glöð. „Já, það ætla ég, ef þú vilt.“ Og nú fékk Klara nóg af fallegum jólagjöfum, sem endurspegluðust í glöð- um barnsaugum. En það, sem Klöru þótti allra vænst um var það, að hún fékk að eiga stóru myndina af jólabarn- inu, og að hún var höfð yfir rúmi henn- ar. Hún var líka búin að eignast góða móður. Sesselja SigurðarcLóttir. Verzlið við þá, sem auglýsa í SKAGANUM 14 SKAGINN

x

Skaginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skaginn
https://timarit.is/publication/1913

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.