Upp í vindinn - 01.05.1998, Síða 7

Upp í vindinn - 01.05.1998, Síða 7
Námsferð 3 árs nema vorið 1997 allur hópurinn á brasilískum veitingastað á horni 7. Stræti og Mission. Eftir óvenjulega en góða máltíð var gengið venju fremur snemma til náða þar sem morguninn eftir var meiningin að leggja snemma af stað til Los Angeles. Laugardagurinn 24. maí. Hótelið var kvatt klukkan sjö um morg- uninn. Ætlunin var að keyra hálfa leiðina til Los Angeles. Þegar komið var til Santa Cruz varð ljóst að öll mótel meðfram þjóðvegi eitt voru fullbókuð nema nokkur herbergi á Best Western í Santa Cruz bænum. Þetta mátti rekja til Memorial day weekend sem er löng helgi og kaninn á faraldsfæti. Því var deginum eytt í Santa Cruz. Stóðið hélt niður á strönd og hóf að spila blak fremur fáklætt. Nokkrir næpuhvítir Islendingar innan hópsins brunnu eilítið á kroppnum. Það voru því hálfgerðar bunarústir sem lögðu sig inn á mótelið meðan hin gengu helstu verslunargötu bæjarins. Klukkan átta um kvöldið lá leiðin í staðartívolíið þar sem helmingur hópsins gekk langleiðina í barndóm. Sunnudagurinn 25. maí. I vændum var mikið ferðalag en 10 tíma akstur var til Los Angeles. Ætlunin var að koma við á sem flestum af þeim stöðum sem staðfróðir höfðu bent á. Fyrsti viðkomustaður var Mortal Beach, höfuðstaður Kaliforníubúa til ársins 1849, en ætlunin var að skoða þar sædýrasafn. Þegar þangað kom var biðröðin í safnið það löng að dýrmætum tíma varð ekki eytt í henni; enn var löng ferð fyrir höndum. Næst var staðnæmst í bænum Carmel by the sea skammt frá, en í þeim bæ var sjálfur Clint Eastwood bæjarstjóri á sínum tíma. Ekið var þar í gegn á mettíma. Þá var stefnan tekin á Hearst kastala. Leiðin þangað var í meira lagi hlykkjótt og erfið yfirferðar. Þegar þangað kom sáu menn að skoðunarferð kæmi til með að taka of langan tíma. Því var brennt áfram. Ferðin eftir þetta gekk í flesta staði vel þrátt fyrir óvenju mörg stopp á leiðinni. Los Angeles heilsaði á ellefta tímanum og farsakenndur dagur, sem þrátt fyrir allt var að margra mati sá besti í ferðinni, var að kvöldi kominn. Mánudagurinn 26. maí. I dag fengu verkfræðinemar frí líkt og Bandaríkjamenn. Bjarni Bessason nokkur fór snemma í búðir en flestallir aðrir sváfu fram að hádegi og létu daginn líða með því að ganga um ströndina, spila imbablak og njóta lífsins. Þriðjudagurinn 27. maí. Dagurinn hófst á því að bruna átti niður í miðborg LA að líta á höfuðstöðvar Cali- fornia Department of Water and Power. Sú stofnun er ígildi ráðuneytis í Kaliforníufylki og hefur yfirumsjón með mikilvægum málaflokkum, sem eru vatns- og orkuöflun innan fylkisins. Þegar starfsfólkið í móttöku hótelsins frétti af þeirri fyrirætlun reyndu þeir ekkert til að dylja hneykslun sína og sögðu að trúlega væri þetta fyrsti túristahópurinn sem bæði um leiðarlýsingu þangað niður eftir. Þegar áfangastað var náð tók vingjarnlegur maður á móti hópnum, fór með hann upp á 17. hæð og las yfir áhugasömum í klukkutíma. Eftir að gest- gjafinn hafði verið leystur út með allgóðum gjöfum var haldið áleiðis í Waste Manage- ment Ltd. sem er sorpurðunarmiðstöð Los Angeles. Dagurinn var óbærilega heitur, hitinn rúmar 40°C, og þótti íslenskum nóg um. Urðu flestir því fegnir þegar dag- skránni lauk og unnt var að kæla lúin bein. 28 - 30. maí. Nú var eiginlegri námsferð lokið og Bjarni hélt heimleiðis. Los Angeles var skoðuð með augum túrista úr limosínu, auk þess sem farið var í Universal Studios í kynningar- og skemmtiferð. Leiktæki voru prófuð og náði ET ferðin að vekja upp ýmsar tilfínningar. Jafnframt var hangsað á ströndinni og bjórar drukknir. Laugardagurinn 31. maí. Flogið var til New York og náðist inn á Washington Square Hotel um eftirmiðdaginn. Kvöldið gaf tækifæri á að kynnast næturlífi New York borgar og ná upp stemmingu fyrir morgundaginn. Sunnudagurinn 1. júní. Dagurinn var sannkallaður hápunktur ferðarinnar, en farið var á U2 tónleika í New Jersey. Akvörðun var tekin um að mæta tímanlega, svo mikið sem 6 klukku- stundum fyrir tónleikana. Dagurinn fór því í að bíða á gangstéttarbrún við Giant Stadium, New Jersey og borða pizzur. Víst er þó að U2 sviku engan. 2. - 4. júní. I New York var aðaláherslan lögð á að kynna sér verslunarmenninguna. Allir kepptust við að kaupa sem allra mest, til að gleðja sjálfan sig og aðra. Þrír úr hópnum lögðu m.a. á sig langan göngutúr til að finna hina margrómuðu undirfatabúð Victorias Secret. Einnig gafst smá ráðrúm til að skoða Empire State bygginginuna og annað markvert í stórborginni. Fimmtudagurinn 5. júní. Heim. ...upp t vindinn 7

x

Upp í vindinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.