Upp í vindinn - 01.05.1998, Qupperneq 8
Birgir Jónsson, jarðverkfræðingur
Birgir Jónsson lauk 1969 B.Sc.Hons. prófi í jarðfræði frá háskólanum í Manchester, Englandi og 1971 M.Sc. prófi í jarðverkfræði frá háskólanum í
Durham, Englandi. Vann hjá Orkustofnun frá 1971 til 1997 við undirbúningsrannsóknir vatnsorkuvera. Frá 1997 hjá VSÓ Ráðgjöf við eftirlit með byggingu
Sultartangavirkjunar. Stundarkennari við Jarðfræðiskor HÍ1975-1993 og við Byggingarverkfræðiskor HÍ1980-1997.
Sultartangavirkjun og íslensk orkumál
Vegna þess hve ísland er jarðfræðilega virkt er landslag hér mjög ungt, sem
veldur því að langsnið vatnsfalla hér eru mjög lítið þroskuð og því óregluleg
með stórum þrepum. Vegna þessa er hér á landi hægt að fá fram hátt fall í
virkjunum með mun lægri stíflum og styttri vatnsvegum en í löndum þar
sem landslag er eldra og langsnið vatnsfalla eru þroskaðri.
MYND 1 Nýjasta mynsturáætlun fyrir vatnasvið Þjórsár ofan
Búrfells. Gert er ráð fyrir að veita Þjórsá til Þórisvatns um
Norðlingaölduveitu.
99,9 99,6
MYND 2 Umhverfisvænt rafmagn í Evrópulöndum. Stöplaritið
sýnir þann hluta raforkunnar í hverju landi sem er
framteiddur á sjálfbæran, mengunartausan hátt. Þetta er nær
attt vatnsorka. Jarðhiti, sótar- og vindorka mælast varla, nema
rafmagn frá jarðhita er nokkur prósent á íslandi. ísland og
Noregur hafa þarna algjöra sérstöðu og reyndu að vekja
athygli á henni á Loftslagsráðstefnunni í Kyoto í desember
1997 með litlum árangri.
Margar mynsturáætlanir
(master plan) hafa verið
gerðar fyrir vatnasvið
Þjórsár og Tungnár en eftir því
sem fleiri virkjanir eru byggðar á
vatnasviðinu binda þær nokkuð
hendur manna um hvað hægt er
að gera í framtíðinni. A mynd 1
er sýnd síðasta mynsturáætlun
fyrir efri hluta Þjórsár- og
Tungnársvæðis og er þar ein stór
breyting frá síðustu áætlun; Nú
er gert ráð fyrir að Þjórsá verði
allri veitt yfir í Þórisvatn um
Norðlingaölduveitu, en áður var
bara um 20% hennar veitt í
Þórisvatn um Kvislaveitu.
1. Nýir orkusölusamningar
Á undanförnum árum hefur
Landsvirkjun gert orkusölusamn-
inga við þrjá stóra raforku-
notendur. Þetta hefur í för með
sér að rafmagnsframleiðsla Lands-
virkjunar mun aukast á næstu
tveimur árum um tæp 50%. Hér
er um að ræða raforkusamninga
vegna stækkunar álvers ISAL í
Straumsvík, byggingar nýs álvers
Norðuráls á Grundartanga og
stækkunar Járnblendiverk-
smiðjunnar á Grundartanga.
Samanlögð aukning á orkuþörf
vegna þessa er rúmlega 2.300
Gwst á ári. Til smanburðar framleiddi
Landsvirkjun 4.800 Gwst á árinu 1996
og var það um 93% af rafmagnsfram-
leiðslu landsins það árið.
Vegna þessarar miklu aukningar í
raforkunotkun hefur verið ráðist í
Sultartangavirkjun og ýmsar fleiri
framkvæmdir. Þegar Sultartanga-
virkjun verður komin í rekstur verða
íslendingar orðin sú þjóð í heiminum
sem notar mest rafmagn á íbúa og er
það allt framleitt á mengunarlausan og
sjálfbæran hátt, þ.e. með vatnsafli eða
jarðhita. Mynd 2 sýnir glögglega hve
rafmagnsframleiðsla Islands og Noregs
er sér á báti í Evrópu.
Meðal annarra nýrra framkvæmda
Landsvirkjunar er gerð Hágöngumiðl-
unnar ofarlega í Köldukvísl, vestan
undir Vatnajökli. Þar mun myndast lón
sem verður 37 km2 að flatarmáli eða
álíka og Mývatn. Miðlunarrými verður
385 G1 og mun orkugeta raforku-
kerfisins aukast um 200 Gwst á
ári. Vatnið úr Hágöngumiðlun
mun síðan renna niður í Þórisvatn
og þaðan um virkjanir Lands-
virkjunar neðan þess. Þá var lokið
við lokaáfanga Kvíslaveitu haust-
ið 1997 sem fólst í stíflugerð og
skurðgreftri til að veita efstu kvísl
Þjórsár til Þórisvatns.
Enn fremur er unnið að
aflaukningu í Búrfellsstöð með
því að endurnýja vatnshjól í
hverflum virkjunarinnar. Nýju
hjólin eru af nýrri hönnun sem
skilar betri nýtingu og auknu
vatnsmagni í gegnum vélar
stöðvarinnar og við það eykst afl
hennar úr 210 upp í 270 MW.
Verður þessu verki lokið á árinu
1998.
Aðrar nýjar framkvæmdir eru
þær að á árinu 1996 var Blöndu-
stífla hækkuð um 4 metra sem
eykur miðlunarrými fyrir
Blöndustöð og orkugetu hennar.
Þá stendur yfir vinna við að setja
upp seinni vél Kröflustöðvar og
við það eykst afl hennar úr 30 í 60
MW. Loks má geta þess að
Reykjavíkurborg er að reisa 60
MW jarðgufuvirkjun að Nesja-
völlum og mun Landsvirkjun
kaupa þaðan rafmagn fyrir álverið
á Grundartanga. Með öllum þess-
um aðgerðum ásamt upp-
byggingu á háspennulínum og öðrum
búnaði verður hægt að anna hinni
miklu orkuþörf vegna stóriðju og
almennrar aukningar fram til ársins
2005.
2. Lýsing á Sultartangavirkjun
Með Sultartangavirkjun er fyrirhugað
að virkja fallið milli Sultartangalóns og
8
...upp í vindinn