Upp í vindinn - 01.05.1998, Blaðsíða 10

Upp í vindinn - 01.05.1998, Blaðsíða 10
Sultartangavirkjun og íslensk orkumál Mynd 5. Á þessari mynd sést allt virkjunarsvæði Sultartanga, frá suðurenda frárennslisskurðar upp að Sandafelli. í baksýn, handan Sandafells sést Sultartangalónið. Farvegur Þjórsár á miðri mynd var þrengdur á 8. áratugnum til að minnka ísmyndun. Lengst til hægri neðarlega er hin skógivaxna Klofaey, en þangað komst fé aldrei meðan beit var á svæðinu. Ljósmynd: Emil Þór. Um páska 1998 höfðu göngin náð 1000 metrum og voru afköst þá 60-70 m á viku og vaktir allan sólarhringinn, alla daga, en enn aðeins unnið frá SV enda. Sprengdir eru 5 metrar í einu. Vinnuferlið er á þessa leið: Borun, hleðsla, sprenging, útmokstur, hroðun, skolun og að lokum styrking með bergboltum og sprautusteypu. Oft þarf ekki að styrkja eftir hverja sprengingu, heldur getur verið sprengt allt upp í fjórum sinnum áður en styrkt er, ef bergið leyfir. Byrjað verður með öðru gengi frá NA enda ganganna eftir páska 1998 og munu afköst þá líklega tvöfaldast. Astandi bergsins er skipt upp í 5 gæðaflokka og styrking valin eftir gæð- um þess. Megnið af berginu hingað til hefur verið smásprungið kubbaberg í flokkum 2 og 3 og er algengasta styrk- ing 5-7 cm þykk sprautusteypa með stáltrefjum í, til að auka togstyrkinn, og 8-12 bergboltar á liverja 5 metra. Boltarnir eru 3 eða 4 m að lengd. Nokkuð er um sprungur í berginu og þarf að styrkja bergið nokkru meira en gert hafði verið ráð fyrir, sérstaklega hefur bergboltum verið fjölgað við sprungurnar. Flestir starfsmenn sem vinna við gangagerðina eru Islendingar, eða um 90%, flestir með reynslu úr Hval- fjarðargöngum og jafnvel Vest- fjarðagöngunum. Hinir starfsmenn- irnir eru Svíar, allir með mikla reynslu í gangagerð frá Svíþjóð. Ef fram fer sem horfir mun gangagerðinni ljúka á réttum txma. Stöðvarhús og sveifluþró. Sá verk- þáttur sem lengstan tíma tekur er gröftur fyrir stöðvarhúsi, bygging þess og uppsetning véla- og rafbúnaðar. Því var byrjað á þessum verkþætti strax í apríl 1997, en framkvæmdir við jarð- göng og frárennslisskurð hófust ekki fyrr en um haustið. Stöðvarhúsið er sprengt allt að 70 m niður í berggrunninn, sem er basalt, bæði kubbaberg og stærra stuðlað bas- alt, sjá mynd 3. Það er á köflum mjög sprungið, sérstaklega í tveimur sprungubeltum við sinn hvorn enda stöðvarhússins. Þessi sprungubelti hafa valdið nokkrum erfiðleikum og hefur þurft að minnka bratta bergveggjanna sums staðar og auka styrkingu verulega annars staðar. Hefur þetta valdið nokkrum töfum við byggingu stöðvarhússins, en gert er ráð fyrir að vinna þær upp sumarið 1998 með því að bæta við aukavakt í byggingar- vinnuna. Frárennslisskurður. Hér vinna saman verktakarnir Suðurverk frá Hvolsvelli og Arnarfell frá Akureyri. Skurðurinn er nær allur sprengdur nið- ur í 3000 ára gamalt hraun, Búrfells- hraun (mynd 5), sem er eitt af mörgum stórhraunum sem komið hafa af Veiði- vatnasvæðinu og hefur það elsta runnið út í sjó við Eyrarbakka og Stokkseyri. I efri hluta skurðarins þarf að grafa niður í grunnvatn og þarf því að dæla sennilega um 2000 1/s af vatni upp úr skurðinum. Nú er þegar dælt 800- 1000 1/s. Verkið hefur hingað til gengið mjög vel og er gröftur lausra yfirborðslaga vel á undan áætlun, en sprenging og gröftur bergs fór seint af stað, en afköst eru hins vegar meiri en áætlað hafði verið, svo verktakinn mun ná áætlun í maí-júní 1998. 4. Tengsl Sultartangavirkjunar og Búrfellsvirkjunar. Kalla má Búrfellsvirkjun rjómadrop- ann á vatnasviði Þjórsár. Þar eru báðar stórárnar komnar saman og þar er mikið fall á stuttum kafla. ísa- og aur- burðarvandamál hafa þó valdið nokkrum erfiðleikum í rekstri virkjun- arinnar og hefur oft þurft að nota dýr- mætt vetrarvatn til að skola ís fram hjá inntaksmannvirkjunum. Þá berst gífurlega mikið af aurburði Þjórsár inn í inntakslónið, Bjarnalón, og þurfti löngum að dæla sandi úr lóninu á hverju sumri. Veita Köldukvíslar inn í Þórisvatn 1971 og bygging Sigöldustíflu í Tungná um 1977 dró mikið úr aur- burðinum. Efri Þjórsá var þó enn með óheftan aurburð uns Sultartangastífla var reist 1982-84. Þá dró svo úr aurburði að aðeins hefur þurft að dæla úr Bjarnalóni á um 5 ára fresti eftir það. Um 3 milljónir rúmmetra af aur bárust 10 ...upp í vindinn

x

Upp í vindinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.