Upp í vindinn - 01.05.1998, Side 13
Sultartangavirkjun og íslensk orkumál
til sjávar fyrir virkjanirnar, en að-
eins um 10-15% afþví magni berst
til sjávar nú.
ísamyndun við Búrfell minnkaði
mikið við byggingu Sultartanga-
stíflu, ásamt því að þrengt var að
hinum breiða og grunna farvegi
Þjórsár á Hafi ofan við Búrfell, sjá
mynd 5. Hinn langi frárennslis-
skurður Sultartangavirkjunar mun
endanlega koma í veg fyrir erfið-
leika vegna ísamyndunar og spara
margan dýrmætan vatnsdropann
sem annars færi framhjá Búrfells-
virkjun.
5. Hraunflóð frá Veiðivötnum?
Geysistór hraun, 9-10 að tölu, hafa
runnið frá Veiðivatnasprungunni
til vesturs og suðvesturs, ofan í
Þórisvatn og niður með Tungná og
Þjórsá, jafnvel allt til sjávar, eins og
minnst var á að framan. Hraunflóð
þessi hafa í hvert sinn hrakið
Tungná og einnig Þjórsá úr farvegi,
sínum og neytt þær til að mynda
nýja farvegi oftast við norðurjaðar
nýja hraunsins. Þessi hraunflóð
hafa breytt landslagi og langsniði
ánna mikið, hálffyllt dali og mynd-
að þar með hagkvæmustu virkjun-
arstaðina.
Hraunin hafa t.d. myndað
virkjunarstaði þeð þvf að þvinga
Tungná til að brjóta sér bratta leið
gegnum móbergsöldur í Sigöldu
og við Hrauneyjafoss og virkjunar-
staðurinn við Búrfell hefur mynd-
ast við það að hraunin lyftu Þjórsá
austan Búrfells, á síðustu 8 þúsund
árum, upp um 120 m, en það er
fallið sem nú er virkjað vestur fyrir
Búrfell niður í Þjórsárdal. Auk þess er
Þjórsá þvinguð af hraununum til að
renna í hálfhring með hraunjarðinum
umhverfis Búrfell og stytta því
verulega leiðina aftur í farveg hennar.
Eldvirknin hefur þó mikla galla í för
með sér, a.m.k. truflun á rennsli
Tungnár meðan á gosi stendur og eins
gætu hraunin eyðilagt mannvirki eða
jafnvel spillt miðlun í Þórisvatni.
Talið er að Veiðivatnasprungan sé
tengd Bárðarbungu, en eins og komið
hefur í ljós með margar afkastamestu
gosstöðvar hér, eru þær tengdar slíkum
TAFLA 1. Kennitölur Sultartangarvirkjunar
megineldstöðvum. Kvikan kemur upp
í risastór kvikuhólf undir megineld-
stöðvunum eins og Kröflu eða Bárðar-
bungu og streymir svo neðanjarðar eftir
sprungukerfum í gliðnunarhrinum eins
og sást við Kröflu og koma upp á yfir-
borðið í miklu magni ef aðstæður leyfa.
Stór gos virðast hafa komið upp á 6-
800 ára fresti á undanförnum árþús-
undum í Veiðivatnasprungunni, hið
síðasta mótaði vötnin í núverandi
mynd nálægt árinu 1480 og gosið sem
myndaði Vatnaöldur og gaus svo-
kölluðu landsnámsöskulagi mun hafa
orðið nálægt árinu 870. Það gæti því
verið skammt í næsta stórgos í
Veiðivötnum, a.m.k. virðist
Bárðarbunga vera farin að bæra á
sér og þarf því að huga að
fyrirbyggjandi aðgerðum.
Nýja hraunið mun að öllum
líkindum koma niður hið breiða
hraunsund sunnan Vestur Bjalla,
rétt ofan við Bjallavað í Tungná.
Gera þyrfti 2-3 km langan
varnargarð, 4-5 m háan, til V eða
VNV frá Tungná ofan við Bjalla-
vað. Þessi ódýra aðgerð myndi
bægja væntanlegu hrauni frá
Sigöldu-, Hrauneyjafoss- og
Sultartangalónum og nálægum
mannvirkjum.
6. Umhverfisáhrif vatnsorkuvera
Vatnsorkuver geta haft nokkra
breytingu á umhverfi í för með sér
enda þótt þær valdi ekki mengun.
Ár breyta um farvegi og fossar
hverfa, land fer undir lón og vatns-
veitur, mannvirki rísa í óbyggðum
og breyta svipmóti þeirra. Miðlun-
arlón hafa áhrif á grunnvatn og
geta eyðilagt gróðurlendi, en
mynda oft ný. Nauðsynlegt er að
meta þessi og önnur slík áhrif,
jafnt neikvæð sem jákvæð, áður en
ákvörðun er tekin um virkjun.
Því er nauðsynlegt þegar á
undirbúningsstigum fyrir mynst-
uráætlanir heilu vatnsviðanna að
láta fara fram mat á umhverfis-
áhrifum hinna mismunandi kosta
sem koma til greina og hafa
landslagsarkitekta og umhverfis-
fræðinga með í hópnum sem vinn-
ur mynsturáætlunina.
Vatnsorkuver, þar með talin miðlun-
arlón, þurfa mikið land. Áætlað hefur
verið að stærð þess lands sem þurfi
undir vatnsorkuver sem hagkvæmt er
nú talið að reisa, ásamt þeim sem þegar
hafa verið reist, sé um 1100 km2, eða
um 1% af flatarmáli landsins. Fjórð-
ungur þessa lands er nú þegar stöðu-
vötn og árfarvegir, annar fjórðungur er
gróðurlendi, en helmingur ógróið land.
Draga má úr landþörf virkjana með
góðri hönnun, t.d. með því að veita
vatni um jarðgöng í stað þess að fara
með það um skurði og vötn langar
leiðir frá miðlunarlóni að stöðvarhúsi.
Afl og orka Fallhæð 42,6 m
Uppsett afl 2 x 60 MW
Vatnsnotkun við uppsett afl 316 m3/s
Orkugeta 880 GWh/ár
Rennsli Vatnasvið virkjunar 6,320 km2
og miðlun Meðalrennsli til miðlunarlóns 304 Flatarmál miðlunarlóns með m3/s
vatnsborði í 297,5 m.y.s. 20 km2
Miðlunarrými 109 Gl
Jarðstífla Lengd 6,100 m
Mesta hæð 23 m
Meðalhæð 12 m
Aðrennslis- Lengd 100 m
skurður Mesta dýpt 38 m
Aðrennslis- Lengd 3,377 m
göng Breidd 12 m
Hæð 15 m
Jöfnunarþró Botn 270 m.y.s.
Botnflötur 15 x 85 m
Vatnsborð við uppsett afl 295 m.y.s.
Þrýstipípur Lengd 40 m
Þvermál 6 m
Stöðvarhús Lengd 58 m
Breidd 16 m
Hæð frá sográsarbotni 45 m
Rofahús Lengd 25 m
Breidd 13 m
Hæð 12 m
Frárennslis- Lengd 7,245 m
skurður Mesta dýpt 40 m
Botnbreidd 10 m
Vatnsborð við stöðvarhús 250,8 m.y.s.
Vatnsborð við Þjórsá 245,0 m.y.s.
Helstu Gröftur 1,500,000 m3
magntölur Sprengingar 2,700,000 m3
Fyllingar 380,000 m3
Steinsteypa 42,000 m3
Steypustyrkarstál 1,800 t
Pipustál 175 t
Helstu verktakar
Byggingar- fstak
vinna Fossvirki Sultartanga, samstarf
Isaks, Skanska Int. Civil
Engineering, Svíðþjóð og
E. Phil & Son, Danmörku.
Suðurverk og Arnarfell.
Vél- og Sulzer Hydro, Þýskalandi, og
rafbúnaður ESB International, írandi.
...upp í vindinn
13