Upp í vindinn - 01.05.1998, Side 22

Upp í vindinn - 01.05.1998, Side 22
Magnús Sædal Svavarsson, byggingarfulltrúi í Reykjavík. Magnús lauk sveinsprófi í húsasmíði í Keflavík ‘65 og prófi í byggingartæknifræði frá TÍ1973. Starfsmaður öryggiseftirlits ríkisins i973-’74. Rafmagnsveitu Reykjavíkur i974-’84 og deildarstjóri í byggingadeild RR. Tæknistjóri hjá byggingadeild borgarverkfræðings i984-’93 og byggingarfulltrúi í Reykjavík frá nóv. 1993. Um eignaskiptayfirlýsingar Hvernig á að gera þær og af hverju. Á árinu 1994 setti Alþingi ný lög um fjöleignarhús, lög nr. 26/1994. Lögin tóku gildi 1. janúar 1995, féllu þá jafnframt úr gildi eldri lög frá 1976 um fjölbýlishús og reglugerðir sem á þeim byggðu. Samkvæmt skilgreiningu í 1. gr. fjöleignarhúsalaga, telst hvert það hús fjöleignarhús sem skiptist í séreignir í eigu fleiri en eins aðila og í sameign sem bæði getur verið allra og sumra. I 1. mgr. 16. gr. fyrrnefndra fjöleignar- húsalaga segir að gera skuli eignaskipta- yfirlýsingu um öll fjöleignarhús, enda liggi ekki fyrir þinglýstur fullnægjandi og glöggur skiptasamningur. Þá eru í loka- málsgrein 17. gr. laganna ákvæði um að ráðherra skuli gefa út reglugerð, þar sem nánari reglur skulu settar um grundvöll, gerð, efni, form og frágang eignaskiptayfir- lýsinga, uppdrátta og stærðarútreikninga. Setning reglugerðar. Eins og áður segir tóku fjöleignarhúsalögin gildi 1. janúar 1995. Reglugerð um eigna- skiptayfirlýsingar tók þó ekki gildi fyrr en í október 1995, reglugerð nr. 538/1995. Var ástæðan sú að semja þurfti nánast frá grunni nýjar skráningarreglur fyrir fasteignir, hanna töfluform fyrir skráning- una, skilgreina hugtök og gera skýringarmyndir og skýringateikninga. Með tilkomu þessara nýju reglna var brotið blað í skráningu fasteigna hérlendis. Höfundum skráningarreglnana og reglu- gerðar nr. 538 var ljóst að nauðsynlegt gæti verið að endurskoða ýmis atriði í reglunum að fenginni nokkurri reynslu, svo varð og raunin. Ný reglugerð, um eignaskiptayfir- lýsingar, útreikning hlutfallstalna o.fl. í fjöleignarhúsum var gefin út 16. júlí 1997 og er hún nr. 471/1997. Grundvöllur eignaskiptayfirlýsingar. Þegar gera skal eignaskiptayfirlýsingar eru samþykktar aðalteikningar af viðkomandi húsi lagðar til grundvallar. Alla stærðarút- reikninga skal gera samkvæmt skrán- ingarteglum Fasteignamats ríkisins og byggingarfulltrúa um mannvirki og ísl- enskum staðli um flatarmál bygginga IST 50. Fylgiskjal með aðalteikningum er svo- nefnd skráningartafla en í hana eru skráðar allar stærðir byggingar samkvæmt fyrr- nefndum skráningarreglum. Skráningartaflan ásamt reikniforriti hefur verið gefin út af FMR og er til veru- legrar einföldunar og samræmingar fyrir notendur. Það er utan þessara skrifa að gera skráningartöflunni skil, en til glöggvunar er hér á næstu síðu útfyllt tafla sem sýnir skráningu einfalds fjöleignarhúss. í lokadálk töflunnar D17 er skráð skipta- rúmmál en það er grunnur að eignarhluta (hlutfallstölu) í mannvirki. Við gerð eigna- skiptayfirlýsingar fyrir nýtt hús tekur höf- undur hennar við samþykktri skráningar- töflu og notar upplýsingar úr henni við gerð yfirlýsingarinnar. Sé um að ræða eldra hús verður að byrja á útreikningi og færslu stærða í skráningar- töfluna áður en eiginleg eignaskiptayfirlýs- ing er gerð. Þá getur einnig þurft að fá samþykki byggingarnefndar á nýjum aðalteikningum hafi verið breytt út frá þeim upphaflegu við byggingu hússins eða eignamörkum verið breytt við gerð kaupsamninga í tímans rás. Töluverð vinna getur legið í öflun upp- lýsinga og sannprófun þeirra þegar gera á eignaskiptayfirlýsingar fyrir eldra húsnæði. Fæstar eldri eignaskiptayfirlýsingar um eldri hús fullnægja ákvæðum fjöleigna- húslaga, má þar nefna að eignahlutföll voru áður reiknuð út frá brúttóstærðartölum en nú út frá nettóflötum x salarhæð, vegna þeirra ákvæða fjöleignahúslaga um að allt burðarvirki húsa skuli vera í sameign. Efni eignaskiptayfirlýsingar. Eignaskiptayfirlýsingu er ætlað að kveða á um réttindi og skyldur eigenda fjöleigna- húsa, hver sé raunveruleg afmörkun á sér- eign þeirra og hvernig hlutdeild þeirra sé í sameign allra og eftir atvikum sameign sumra. I eignaskiptayfirlýsingu skulu eftirfar- andi atriði koma fram á skýran og skil- merkilegan hátt: • Um hvaða fjöleignahús er að ræða. Gefa skal það til kynna með götunafni, húsnúmeri og sveitarfélagi. • Almenn lýsing á húsinu, svo sem stærð þess og gerð og hvers eðlis það er. • Lýsing á hverjum séreignarhluta, staðsetning hans, bæði hæð og innan hæðar, stærð hans í fermetrum og herbergjum ef því er að skipta, hvers eðlis hann er og hvað honum fylgir sérstaklega. • Hver sé hlutfallstala (hlutfallstölur) hvers séreignahluta, á hvaða grundvelli hlutfallstölur séu reiknaðar út og hver hafi gert það. • Hvort séreignahluta fylgi sérstakur réttur til byggingar ofan á eða við hús á lóð þess. • Greinagóð lýsing á allri sameign hússins og sameiginlegum búnaði, bæði innan húss og utan, þar með talin lóð . • Glöggt skal greina ef tiltekið rými eða búnaður er í sameign sumra en ekki allra. Þá þarf í eignaskiptayfirlýsingu að gera grein fýrir kvöðum sem kunna að vera á húsi eða lóð. Greina þarf frá í hverju kvöðin sé fólgin og hver sé handhafi hennar. Jafnframt skal greina frá ef um sérafnota- flöt á lóð er að ræða og öðrum þeim sérrétt- indum eða skyldum sem fylgt geta séreignahluta, má hér nefna forkaupsrétt eiganda einnar eignar að annarri. Á þeim minnkuðu (A4) teikningum og uppdráttum sem fylgja eignaskiptayfirlýs- ingum og í þeim skulu glögglega koma fram þau auðkenni og merkingar sem eign eða eignahluti hefur í fasteignaskrá sam- 22 ...upp í vindinn

x

Upp í vindinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.