Upp í vindinn - 01.05.1998, Síða 23

Upp í vindinn - 01.05.1998, Síða 23
Um eignaskiptayfirlýsingar Skráningartafla: Melgerði 18 Skrásetjari: M.H. Landnúmer: 108035 Kennitala: 040848-7119 Matshlutanúmer: 01 , Dags.: 20.10.97 •* Uppskipting og lýsing Stærðir D0 Lokun D1 Rými hæð-röð D2 Notkun texti D3 Höfuð- flokkun D4 Eignar- Hald D5 Botn- flötur m2 D5M Milli- flötur m2 D6 Stigar m2 D7 Op m2 D8 Brúttó- flötur m2 D9 Brúttó- flötur sh < 1,8 DlOa Salar- hæð Min DlOb Salar- hæð max Dll Brúttó rúmmál m3 D12 Nettó -flötur m2 D16 Birt flatar- mál m2 Reikni- tala skipta- rúmmáls D17 Skipta- rúmmál m3 Matshluti 202,7 0,0 4,0 5,4 197,3 25,8 555,2 186,0 171,5 452,5 Botn 21,1 01 1. hæð 105,5 0,0 4,0 0,0 105,5 0,0 279,6 93,9 105,5 248,9 A 0101 íbúð N 0101 98,2 98,2 2,65 2,65 260,3 87,2 98,2 231,1 A 0102 Stigagangur U 0201 7,3 4,0 7,3 2,65 2,65 19,3 6,7 7,3 17,8 02 2. hæð 97,2 0,0 0,0 5,4 91,8 25,8 206,1 92,1 66,0 203,6 A 0201 íbúð N 0201 97,2 5,4 91,8 25,8 0,50 2,60 206,1 92,1 66,0 2,12 195,3 C 0202 Svalir S 0201 8,3 8,3 1,00 8,3 03 Þak 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 48,4 0,0 0,0 0,0 A 0301 Þakrými F 0201 0,00 2,00 48,4 kvæmt reglum Fasteignamats ríkisins og byggingarfulltrúa. í upptalningu hér að ofan segir að x eignaskiptayfirlýsingu skuli gefa upp hlut- fallstölu (hlutfallstölur) hvers séreigna- hluta. Hlutfallstölur geta verið nokkrar eftir eðli séreignar og samsetningu þeirrar fast- eignar sem eignaskiptayfirlýsing tekur til. Mikilvægt er því að sá er eigna- skiptayfirlýsingu gerir átti sig á fjölda þeirra hlutfallstalna sem reikna þarf og þeim grundvelli sem þær hvíla á. En hlut- fallstölur eru notaðar m.a. til skiptinga á margskonar kostnaði og rekstrargjöldum fasteignarinnar. Um skilgreiningu kostn- aðar og skiptingu hans er fjallað í 43.-47. grein fjöleignahúslaga. Breytingar á eignaskiptayfirlýsingu. Eignaskiptayfirlýsingar þurfa staðfestingu viðkomandi byggingarfulltrúa áður en til þinglýsingar kemur. Þinglýstri eigna- skiptayfirlýsingu og hlutfallstölum er hægt að breyta enda skulu allir eigendur eiga þess kost að vera með í ráðum og þarf sam- þykki allra sem hagsmuna eiga að gæta ef breytingarnar hafa í för með sér eignayfir- færslu eða kvaðir á eignarhluta. Felist breyting aðeins í leiðréttingu í samræmi við þinglýstar heimildir um húsið og ein- staka eignarhluta og ákvörðun hlutfalls- talna samkvæmt gildandi reglum er nægi- legt að stjórn húsfélags í húsi þar sem eignahlutar eru sex eða fleiri láti gera slíkar breytingar og undirriti nauðsynleg skjöl í því skyni. Aður skal hússtjórnin gefa öllum eig- endum kost á að koma sjónarmiðum og athugasemdum á framfæri. Ef eignarhlutar eru færri en sex nægir að meirihluti eig- enda sbr. 16. gr. fjöleignarhúsalaga undir- riti nauðsynleg skjöl. Hver eigandi á kröfu á því að hlutfalls- tölur endurspegli rétta skiptingu húss. Getur sá eigandi sem telur hlutfallstölur eða eignahlutföll í húsi sínu óeðlileg eða ósanngjörn krafist breytinga og leiðrétt- ingu þar á. Neiti aðrir eigendur að standa að nauð- synlegum breytingum getur viðkomandi fengið dómkvadda matsmenn til endur- reiknings og endurákvörðunar á hlutfalls- tölum. Hægt er að krefjast yfirmats og getur eigandi sem breyta vill á grundvelli þess höfðað mál á hendur öðrum eigendum til ógildingar á gildandi hlutfallstölum og eignarhaldi og viðurkenningu á hinum nýju. Dómsorði getur eigandinn látið þinglýsa gangi dómur honum í vil og kemur það í stað eignaskiptayfirlýsingar. Þessari aðferð er einnig hægt að beita í þeim tilvikum að þinglýst eignaskiptayfirlýsing er ekki fyrir hendi og ekki næst samstaða eigenda um gerð hennar. Breytingar á húsurii, sem fela í sér stækkanir hafa í för með sér breytingu á eignaskiptayfirlýsingu. Hverjir gera eignaskiptayfirlýsingar? Leyfi til þess að gera eignaskiptayfirlýsingu hafa þeir sem sótt hafa námskeið sem hald- in eru á vegum prófnefndar sem skipuð er af félagsmálaráðherra. Slík námskeið eru öllum opin og þeim lýkur með eignaskiptayfirlýsingaprófi. Til þess að standast próf þarf prófmaður að hljóta einkunnina 7.0. Félagsmálaráð- herra gefur út leyfisbréf til þeirra er prófin standast og gildir það til 5 ára. Nú hafa alls um 140 manns hlotið slíkt leyfisbréf. Þinglýsingarákvæði. Byggingarfulltrúi staðfestir eignaskipta- yfirlýsingu og skal hann senda Fasteigna- mati ríkisins eintak af henni. Samkvæmt 4. mgr. 16. gr. fjöleignahúslaga skal það vera skilyrði þinglýsingar eignayfirfærslu fjöleignarhúss eða hluta þess að eigna- skiptayfirlýsing liggi fyrir og að eignayfir- færsla sé í samræmi við hana. Með laga- breytingu hefur verið gefin undanþága frá þessu skilyrði til 1. janúar 1999. Lokaorð. Hér að ofan hefur verið gerð grein fyrir grundvelli og tilgangi eignaskiptayfirlýs- ingar. Um yfirgripsmikið efni er að ræða og hefur því ekki verið gerð tæmandi skil hér. Það er skoðun höfundar að með setningu fjöleignahúslaga og reglugerðúm sem á þeim byggja, ásamt setningu skráningar- reglna Fasteignamats ríkisins og bygg- ingarfulltrúa, hafi verið stigið stórt skref til þess að tryggja réttaröryggi og faglega skráningu fasteigna á Islandi. □ Heimildir: Lög nr. 26/1994; Reglugerð nr. 471/1997; Reglugerð nr. 233/1996 Skráningarreglur FMR og byggingarfiilltrúa. ...upp í vindinn 23

x

Upp í vindinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.