Upp í vindinn - 01.05.1998, Page 29

Upp í vindinn - 01.05.1998, Page 29
GÍSLI GÍSLASON, landslagsarkitekt FÍLA, Landmótun ehf, Nýbýlavegi 6 kópavogi Gísli lauk BS námi í jarðfræði frá HÍ 1982 og mastergráðu landslagsarkitektúr frá Landbúnaðarháskólanum í Ási í Noregi 1991. Vann á skrifstofu Náttúrverndarráðs 1980-1988, þar af framkvæmdarstjóri ráðsins frá 1984. Hefur rekið eigin teiknistofu frá 1991 og stofnaði 1993 Landmótun ehf ásamt landslagsarkitektunum Einari E. Sæmundsen og Yngva Þór Loftssyni. Svæðisskipulag Miðhálendis fslands Hér verður reynt að gefa stutt yfirlit niðurstöður vinnu við svæðisskipulag Miðhálendis íslands. Hér verður ekki fjallað um að- draganda né vinnuaðferðir heldur er skipulagshugmynd- inni lýst og meginniðurstöðum tillög- unar eins og hún var auglýst á síðasta ári. Sérstök áhersla er lögð á að lýsa þeim þáttum sem hafa í för með sér mannvirkjagerð á svæðinu. Bent er á að skipulagsgögnin er hægt að fá hjá Skipulagsstofnun ríksis. 1. Skipulagshugmynd Skipulagshugmyndinni er auðveldast að lýsa með því að horfa á hálendið í beltum eða brautum eftir mann- virkjastigi og verndargildi eins og sýnt er á mynd 1. Annars vegar eru verndar- heildir þar sem eru ýmis konar verndarsvæði og hins vegar mann- virkjabelti þar sem eru mismunandi byggingarsvæði. Þannig er stuðlað að því að allri meiriháttar mannvirkjagerð sé haldið á afmörkuðum beltum eða brautum, en á hinn bóginn tekin frá sem stærst og sam- felldust verndarsvæði eða verndarheildir þar sem framkvæmdum er haldið í lágmarki. Innan verndar- heildanna eru stærstu ósnortnu víðerni Islands. Þeir sem halda því fram að stærstu víðernin séu utan hálendisins hljóta að gefa sér þá forsendu að nú þegar sé búið að byggja vegi, há- spennulínur og uppi- stöðulón langt umfram ítrustu hugmyndir yfirvalda vega- og orkumála. a. Á verndarheildunum eru einkum náttúruverndar- svæði og verndarsvæði. Þar eru einnig helstu ferðamannasvæði hálend- isins, útivistarvegir, gönguskálar og annar búnaður til útivistar. Á jöðrum þeirra eru víða vegir og orkumannvirki. b. Á mannvirkjabeltum eru helstu byggingarsvæði hálendisins. Þar eru flutningsæðar raforku og umferðar, auk uppistöðulóna virkjana. Enn fremur helstu efnistökusvæði til slíkra stórframkvæmda. Helstu þjónustumiðstöðvar ferðamanna, jaðarmiðstöðvar og hálendismið- stöðvar, eru jafnan staðsettar við aðalfjallvegi. 2. Helstu niðurstöður Skipulag Miðhálendisins tekur til margra ólíkra hagsmuna og enginn einn þáttur er allsráðandi yfir öllum hinum. Hér er því ekki einvörðungu unnið að áætlun um einstaka þætti á borð við náttúruvernd, landgræðslu, orkuvinnslu, uppbyggingu ferða- þjónustustaða, vatnsvernd eða vega- gerð, - heldur samræmda stefnumörk- un um alla þessa þætti. Ein meginniðurstaða vinnunar er sú, að hægt sé að gera hvoru tveggja í senn; að taka frá stór verndarsvæði, en jafnframt að ganga mjög langt á móts við hagsmuni orkuvinnslu, vegagerðar og annarrar mannvirkjagerðar. Ein- faldir flatarmálsútreikningar einstakra landnotkunarflokka segir auðvitað lítið um vægi á milli hagsmuna, s.s. orku- vinnslu og náttúruverndar. Þá er rétt að ítreka að marggefnu til- efni að skipulagsáætlanir eru í sífelldri endurskoðun og eru ekki stóri sann- leikur í eitt skipti fyrir öll. Hins vegar getur búið lengi af fyrstu gerð þegar fagleg rök eru lögð til grundvallar. 3. Flokkun verndarsvæða Verndarsvæði eru ferns konar; náttúru- verndarsvæði, verndarsvæði, vatns- MYND 1. Beltaskipt landnotkun ...upp í vindinn 29

x

Upp í vindinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.