Upp í vindinn - 01.05.1998, Page 31
Svæðisskipulag Miðhálendis íslands
og þjóna um leið þörfum raforku-
vinnslunnar.
Orkuframkvæmdir hafa haft mikil
áhrif á staðsetningu vega á hálendinu.
Þar sem lögð er áhersla á að færa línu-
leg mannvirki saman í mannvirkja-
brautir er sýnt að orkuvinnslan muni
áfram gegna stóru hlutverki að þessu
leiti.
Aðalfjallvegir eru bestu vegir
hálendisins og skilgreindir sem e.k.
“stofnvegir”, sem verði byggðir sem
góðir sumarvegir, með brúuðum ám og
færir öllum venjulegum fólksbílum.
Þeir tengja saman byggðarlög þvert
yfir hálendið og liggja um helstu bygg-
ingarsvæði þess. Vegirnir verði opnir
a.m.k. 4-6 mánuði á ári. I þessum
flokki eru m.a. Kjalvegur og Sprengi-
sandsleið, sem lagt er til að færist til
vesturs og liggi um Kvíslaveitur.
Þjónustusvæði ferðamanna
Almennt er gert ráð fyrir að uppbygg-
ing ferðamannaaðstöðu verði takmörk-
uð á Miðhálendinu. Megináhersla verði
lögð á jaðarsvæðin og á nokkur afmörk-
uð svæði í nánd við aðalfjallvegi. Þá eru
verndarsvæðin sem áður hefur verið
lýst öðrum þræði ferðamannasvæði og
tekin frá til almennrar útivistar. Þjón-
ustustaðir ferðamanna eru flokkaðir
eftir þjónustustigi og aðgengileika í
ferns konar byggingarsvæði; jaðarmið-
stöðvar, hálendismiðstöðvar, skála og
fjallasel. Jaðarmiðstöðvar og hálendis-
miðstöðvar eru miðstöðvar upplýsinga-
og fræðslustarfs á hálendinu.
Jaðarmiðstöðvar eru þjónustumið-
MYND 3 Hér eru bornir saman hagsmunir
orkuvinnslunar og náttúruverndar. Miklir
hagsmunaárekstrar eru á Eyjabökkum og í
Þjórsárverum sem leiða þarf til lykta á
skipuiagstímanum.
stöðvar ferðamanna á jaðarsvæðum
Miðhálendisins og efst í byggð við
meginleiðir inn á hálendið. Staðir í
góðu vegasambandi við þjóðvegi með
möguleika á starfrækslu ferðamanna-
þjónustu allt árið. Hálendismið-
stöðvar eru frábrugðnar jaðarmið-
stöðvum að því leiti að þar eru ekki
möguleikar á heilsársrekstri. Þær eru
jafnan miðsvæðis á lengri leiðum og
eru staðsettar við stofnvegi hálendisins.
4. Að lokum
Land er ekki skipulagt í eitt skipti fyrir
öll heldur er það endurskoðað með
ákveðnu árabili. Skipulag er í eðli sýnu
ákveðin nálgun miðað við bestu fáan-
legu upplýsingar, viðhorf og aðstæður á
hverjum tíma. Nú þegar er í vinnslu
svæðisskipulag í nokkrum héruðum
sem ná yfir stóra hluta svæðisins þar
sem farið er dýpra í saumana en kostur
er í skipulagi Miðhálendisins.
Astæða er til að fara varlega í alla
meiri háttar mannvirkjagerð á hálendi
Islands. Með því að skilgreina bygg-
ingarsvæði hálendisins á afdráttar-
lausan hátt, í ákveðnum beltum eða
brautum, er hægt að taka frá rúm
verndarsvæði þar sem öllum fram-
kvæmdum er haldið í lágmarki.
Hér hefur verið stiklað á stóru og
farið hratt yfir sviðið. Samandregið eru
helstu niðurstöður tillögunnar þessar:
1. Gerð gróf úttekt á byggingarmál-
um, lagðar línur varðandi meðferð
byggingarmála.
2. Víðfeðm verndarsvæði eru tekin frá
til framtíðar og þau mikilvægustu
skilgreind sem náttúruverndar-
svæði. Auk þess er vakin athygli á
vatni sem auðlind og gerð gróf út-
tekt á fornminjum.
3. Sýnt er fram á að mögulegt er fara
út í mikla raforkuvinnslu án þess að
skaða um of hagsmuni ferðaþjón-
ustu og náttúruverndar.
4. Stofnvegakerfi er skilgreint og
megináhersla lögð á góða sumarvegi
sem þókna hagsmunum ferða-
mennsku, orkuvinnslu og almenn-
um samgöngum.
5. Tekin eru frá rífleg byggingarsvæði
fyrir ferðaþjónustuna auk baklands í
formi stórra verndarsvæða. □
Sglls ...að sjálfsögðu ÍSIAK
hönnun hf VERKFRÆÐISTOFA B inpsMKSBí 1 Hringbraut 35, 107 Reykjavík. símt 551 1532 / Austurströnd 14. 170 Seltjarnarnesi. sfmi 561 1433 / Fálkagata 18,107 Reykjavík. sími 551 5430 Kennitala 660189-2039. Vsk.nr. 13096
Arkitektastofa Benjamíns Magnússonar Hamraborg 10 fyy MOSFELLSBÆR
...upp í vindinn
31