Upp í vindinn - 01.05.1998, Síða 36
Skafrenningur og snjósöfnun
verið erfitt að ryðja hann af götum, því
oftast lendir hann á nálægri gangstétt,
hins vegar getur verið erfitt, tafsamt og
um leið dýrt að moka honum upp til að
keyra á losunarstað. Hingað til hefur
miklum hluta hans verið rutt upp á
gangstíga til trafala fyrir gangandi veg-
farendur. Þegar síðan göngustígarnir
eru ruddir eru myndaðir háir hryggir á
gangstéttarbrún við götu sem bæði
veldur vandræðum fyrir ökumenn og
gangandi þegar snjó fer að skafa aftur.
Skipulag samgöngukerfis í þéttbýli
virðist lítið tillit taka til þess að vetur
getur verið viðvarandi a.m.k. þriðjung
ársins með tilheyrandi snjó.
Það er mikilvægt að forma umhverfi
vega þannig að sem minnstar
hindranir, sem hugsanlega gætu safnað
að sér snjó, verði nálægt þeim. Með þvx
er bæði átr við kennisnið vegskeringa
og fyllinga en einnig mannvirkja í veg-
brúnum s.s. leiðara. Þá getur tölu-
verðan snjó skafið inn á veg við enda
brúa og skapað mikla hættu fyrir
ökumenn.
Ef ekki er hægt að forma umhverfi
vega á byggingarstigi þá er í sumum
tilfellum möguleiki á því að byggja
snjósöfnunargirðingar til þess að
minnka snjósöfnun.
Snjósöfnunargirðingar
Almennur fróðleikur um
snjósöfnunargirðingar
Snjósöfnunargirðingar hafa verið í
notkun í Evrópu í meira en hundrað ár
hjá ýmsum aðilum. Ýmsar gerðir snjó-
söfnunargirðinga hafa verið þróaðar á
þessum tíma og mikið verið byggt af
þeim. Fyrr á tímum voru girðingarnar,
burðarvirki og slár, aðallega úr stffu
byggingarefni og þær eru það flestar
hverjar einnig í dag. Hins vegar hafa
plastefni bæst við sem byggingarefni á
síðustu árum, fyrst sem net í stað
slánna en nú einnig sem staurar.
Helsta hlutverk snjósöfnunargirð-
inga er að hægja það mikið á vindi að
hann missi burðargetu/flutningsgetu
og snjórinn falli niður skammt frá girð-
ingunni. Með þessu er verið að breyta
snjósöfnun þannig að snjór safnisr á
fyrirfram ákveðin stað utan þess svæði
sem verið er að verja. Snjósöfnunargirð-
ingar geta einnig þjónað öðrum hlut-
verkum s.s. eins og að minnka skaf-
renning vegna hægari vinds og auka
sýn en það eru einmitt þættir sem
skipta Vegagerðina miklu máli. Vega-
gerðin hefur víða um land byggt
snjósöfnunargirðingar til þess að reyna
að minnka snjósöfnun inn á vegina og
skapa með því betri akstursskilyrði. Þá
hafa snjósöfnunargirðingar einnig verið
byggðar í þéttbýli víða um land til þess
að breyta snjósöfnun við ýmis mann-
virki. Flestar þessara girðinga eru lág-
reistar, milli eins og rveggja metra
háar.
Snjósöfnunargirðingar hafa verið
byggðar á a.m.k. tveimur stöðum á
landinu til þess að breyta snjósöfnun í
upptakasvæði snjóflóða ofan byggða. Á
Siglufirði var byggð girðing á norður-
brún Ytra Strengsgils (það er vel
þekkur snjóflóðafarvegur þar) en hún
grotnaði niður með tímanum sökum
viðhaldsleysis. Ofan Olafsvíkur var sett
upp snjósöfnunargirðing árið 1985 en
þá voru einnig sett upptakastoðvirki
vegna snjóflóða í brekkubrúnina ofan
Heilsugæslustöðvarinnar. Þær voru
franskrar gerðar og gátu snúist eftir
vindátt. Líklega hefur íslensk veðrátta
ásamt göllum í uppsetningu valdið því
að þær virkuðu ekki eins og til stóð.
Þær voru teknar niður árið 1996.
Snjósöfnunargirðingar geta verið
álitlegur kostur þegar snjóflóðavarnir
byggðalaga eru skoðaðar en þær koma
sjaldan til álita einar sér. Gera þarf
rannsóknir hér á landi á því hvernig
slíkar girðingar virka, hvaða bygg-
ingarefni sé hentugast, hversu háar þær
ættu að vera og hvar og hvernig
hentugast er að staðsetja þær á við-
komandi stöðum. Miklu skiptir að
virkni þeirra sé sem best þannig að
ekki þurfi að koma til kostnaðarsamra
breytinga eftir að byggingu þeirra er
lokið. þá þarf að hyggja að því hvaða
áhrif aukið snjómagn við girðingarnar
hefur á vatnabúskap og rofliættu á
fjallstoppum þar sem þær hafa verið
settar. Æskilegt er að gera nokkurra ára
(helsr 10 ára) rannsóknir á veðurfari
áður en lagt er í byggingu snjósöfn-
unargirðinga
Magn snævar sem fellt er með snjó-
söfnunargirðingum er fall af vind-
hraðanum.
Rannsókn Rannsóknarstofnunar
byggingariðnaðarins
Haustið 1997 gerði Rannsóknarstofn-
un byggingariðnaðarins (Rb), undir
forystu Björns Marteinssonar rannsókn
á skjólverkun nokkurra mismunandi
gerða neta. Rannsóknin fólst í því að
kanna hversu mikil dempun verður er
Aratuga reynsla,
Frábær gæði og ending
er okkar aðalsmerki
GLER
Œ3I
GERÐAVOTTUNM
GLERBORGARGLER BORGAR SIG
Framleitt undir gcedaeftirliti RB
-við þjónustum okkar viðskiptavini
GLERBORG
DALSHRAUNI 5 • 220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 565 0000 • FAX 555 3332
36
...upp í vindinn