Þroskaþjálfinn - 2002, Blaðsíða 13
Þroskaþjálfinn íl'
Kennsla á Starfsbraut
Nemendahópur deildarinnar er mjög ólíkur innbyrðis
hvað varðar getu og færni. Nauðsynlegt er að hafa góða yf-
irsýn yfir færni, getu og áhugasvið nemenda. Starfið okkar
í FB er því mjög fjölbreytt og tekur til margra þátta. Má
þar til dæmis nefna einstaklingskennslu, heimilisfræði, lífs-
leikni, vettvangsferðir og tölvukennslu. I þessu felst undir-
búningur kennslunnar, námsefnisgerð og gerð kennsluá-
ætlana. Þá tökum við þátt í greinum eins og líkamsþjálfun
og sundi. Einnig höfum við fylgt nemendum deildarinnar
í starfsnám sem er hluti af námi þeirra við deildina. Við
notum umhverfi skólans til kennslu og þjálfunar. Farið er á
almenningsbókasafn sýningar og verslanir. Samstarf við að-
standendur/forráðamenn og tengslastofnanir eru stór hluti
starfs okkar og leggjum við áherslu á gott samstarf við alla
þá aðila sem tengjast deildinni.
Eins og komið hefur fram er starf oldkar við deildina afar
fjölbreytt.
Starfið er krefjandi en ákaflega skemmtilegt og erum við
stöðugt að læra eitthvað nýtt. Við teljum að það sé styrk-
ur deildarinnar að þar starfar fólk með margþætta mennt-
un og reynslu.
Ásgerður Flauksdóttir
Dadda Guðrún Ingvadóttir
þroskaþjálfar
hundruð ára hafa
íslendingar ræktað
sauðfé á hreinu,
óspilltu landi
Þá getur treyst gæðum
íslenska lambakjötsins